Könnun um stöðu handverks á Íslandi

SSVFréttir

Rannsóknasetur skapandi greina (RSG) hefur umsjón með framkvæmd könnunar um stöðu handverksfólks á Íslandi, fyrir hönd sjálfseignarstofnunarinnar Handverks og hönnunar.

Markmiðið með könnuninni er að öðlast dýpri skilning á umhverfi handverksfólks á Íslandi í víðu samhengi og bera kennsl á þá þætti sem þarfnast umbóta með þarfir iðkenda í huga. Tilgangurinn er að efla íslenskt handverk sem atvinnugrein, stuðla að tryggri framtíð þess fyrir ókomnar kynslóðir og auka skilning á handverki sem menningarverðmæti í samtímanum.

Þeir þættir sem teknir eru fyrir snúa að skilgreiningum og sjálfsmynd, menningararfi, starfsumhverfi, hugverki, söluumhverfi, stjórnvöldum, Handverk og hönnun, og loks bakgrunni þátttakenda. Svörin eru nafnlaus og könnunin tekur um 8–12 mínútur.

 

Könnunin er opin út sunnudaginn 22  júní n.k.

Hvetjum við allt handverksfólk   að taka þátt í könnuninni

Hér er hlekkur á könnunina.

Rannsóknarsetur skapandi greina