Á Grímunni, verðlaunahátíð Sviðslistasambands Íslands 2025 var Kjartani Ragnarssyni veitt heiðursverðlaun fyrir framlag hans á sviði sviðslista. Spannar ferill Kjartans rúm sextíu ár og eftir hann liggja leikverk á borð við Týnda teskeiðin, Saumastofan og fleiri.
Hér á Vesturlandi þekkjum við Kjartan best fyrir mikið brautryðjendastarf á sviði menningarferðaþjónustu.
Hann, ásamt eiginkonu sinni Sigríði Margréti Guðmundsdóttur stofnsettu Landnámssetur Íslands í Borgarnesi fyrir hartnær 20 árum sem gjörbylti atvinnuháttum bæjarins eins og segir í Sögu Borgarness sem kom út fyrir nokkrum árum svo ekki sé nefnd listræn áhrif á menningarlíf bæjarins.
Þá komu hjónin að uppbyggingu Vínlandssetursins í Búðardal sem hóf starfsemi sína fyrir nokkru síðar.
Hjartað í starfsemi Landnámssetursins er Söguloftið þar sem fram hafa farið metnaðarfullar sýningar allt frá stofnun þess, Þar má nefna Mr. Skallagrímsson og Brák, en báðar þessar sýningar hlutu Grímuna fyrir leik og leikgerð.
Ferill Kjartans er glæstur og heiðursverðlaun Grímunnar eru vel verðskulduð.
Starfsfólk SSV óskar Kjartani innilega til hamingju með áfangan og þökkum frábært samstarf!
