Íbúaþing – Sóknaráætlun Vesturlands 2025-2029

SSVFréttir

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi standa fyrir íbúaþingi miðvikudaginn 18. september um endurskoðun Sóknaráætlunar Vesturlands.
Þingið fer fram í Hjálmakletti í Borgarnesi og hefst kl. 16 og mun standa til kl.18:00.
Nauðsynlegt er að skrá þátttöku!

Markmiðið með þinginu er að fá íbúa á Vesturlandi til að koma saman, skiptast á skoðunum og forgangsraða áherslum um hvernig þau vilja sjá Vesturland þróast.

Afrakstur þingsins mun verða leiðarljós við frekari vinnu við Sóknaráætlun Vesturlands
fyrir árin 2025-2029.

Verum með og tökum þátt. Það er leiðin til þess að hafa áhrif á hvernig Vesturland þróast.

Við bjóðum alla Vestlendinga velkomna á íbúaþingið!

Boðið er upp á barnahorn, þar sem tekið verður á móti börnum í Kvikunni, skapandi rými Menntaskóla Borgarfjarðar.

Grillveisla að þingi loknu!

Staðsetning: Hjálmaklettur í húsnæði Menntaskólans, Borgarbraut 54, Borgarnes

SKRÁNING HÉR

Skráningu lýkur kl. 12:00 á hádegi þann 18. september