Íbúafundur vegna skjálftavirkni í Ljósufjallakerfinu

SSVFréttir

Opinn íbúafundur vegna skjálftavirkni við Grjótárvatn í Ljósufjallakerfinu verður haldinn miðvikudaginn 20. ágúst nk. kl. 16.30 í Hjálmakletti í Borgarnesi.

Fundurinn er boðaður af Almannavarnanefnd Vesturlands. Tilgangur fundarins er að eiga samtal við íbúa vegna yfirstandandi jarðskjálftavirkni við Grjótárvatn í Ljósufjallakerfinu.

Fyrirlestrar verða frá Veðurstofu Íslands, Náttúruhamfaratryggingu Íslands og Neyðarlínunni en jafnframt verða fulltrúar Ríkislögreglustjóra, Lögreglunnar á Vesturlandi og sveitarfélaga á fundinum til að svara spurningum og taka þátt í umræðum.

Fundurinn verður sendur út í beinu streymi  https://www.youtube.com/live/nhjKDAKj9nY

Björn Bjarki Þorsteinsson formaður Almannavarnanefndar Vesturlands setur fundinn.

Fundarstjóri verður Stefán Broddi Guðjónsson sveitarstjóri Borgarbyggðar.

Öll velkomin.

Mynd af Ljósufjöllum á Snæfellsnesi. Fjöllin eru þakin snjó. Mynd af Ljósufjöllum af vef RUV