Fyrsti fundur Farsældarráðs Vesturlands var haldinn að Garðavöllum á Akranesi þann 22. janúar síðastliðinn en Farsældarráð Vesturlands var formlega stofnað þann 1. október 2025. Í farsældarráðinu eiga sæti fulltrúar frá sveitarfélögunum á Vesturlandi, fulltrúar þeirra ríkisstofnanna sem eru á Vesturlandi, fulltrúi frá Svæðisstöð íþróttahéraða og fulltrúar frá Ungmennaráði Vesturlands.
Farsældarráð vinnur í samræmi við farsældarlög með það að markmiði að efla og samræma þjónustu við börn og fjölskyldur á Vesturlandi með samþættri, snemmtækri og heildstæðri nálgun. Jafnframt mun farsældarráð vinna að því að styrkja þverfaglegt samstarf og tryggja að farsæld
barna sé leiðarljós í stefnumótun og framkvæmd þjónustu í landshlutanum.
Elísabet Sigfúsdóttir sérfræðingur á Farsældarsviði Barna- og fjölskyldustofu hélt erindi um hlutverk farsældarráðs og farsældarlögin, Ragný Þóra Guðjohnsen faglegur stjórnandi Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar fór yfir lykiltölur ÍÆ varðandi börn og ungmenni á Vesturlandi, Bára Daðadóttir verkefnastjóri farsældarmála hjá SSV fór yfir niðurstöður Farsældardags Vesturlands ásamt stöðu innleiðingar farsældar á Vesturlandi og Jón Arnar Sigurþórsson Samfélagslögregla á Vesturlandi sagði ráðsmönnum frá því góða forvarnarstarfi sem lögreglan á Vesturlandi stendur fyrir í þágu barna og ungmenna.

Að fyrirlestrum loknum var vinnustofa fyrir fulltrúa Farsældarráðs Vesturlands en verkefni vinnustofunnar var að kortleggja þau forgangsatriði sem fulltrúar telja brýnt að lögð sé áhersla á.
Farsældarráð hafa verið formlega stofnuð í öllum landshlutum og skrifuðu verkefnastjórar farsældarráðanna grein sem birtist á Vísi þann 29.1.2026
Næsti fundur Farsældarráðs Vesturlands verður haldinn í Borgarbyggð í mars næstkomandi og verður þá unnið að svæðisbundinni aðgerðaráætlun í þágu farsældar barna á Vesturlandi.