Þriðjudaginn 14. nóvember verður haldinn opinn fundur um atvinnuuppbyggingu og þróun íbúðarmarkaðar í landsbyggðunum. Fundurinn verður haldinn í Landnámssetrinu kl. 11:30 og er opinn öllum. Að fundinum standa aðilar sem láta sig varða uppbyggingu í landsbyggðunum eða SSV, Byggðastofnun, HMS, Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið og Samtök iðnaðarins.
Á fundinum verður fjallað um atvinnuþróun í landsbyggðunum, stöðuna á íbúðamarkaði, stafræn byggingarleyfi, nýsköpunarstyrki, hagkvæmni og skilvirkni í íbúðauppbyggingu og þau lánaúrræði sem standa til boða bæði hvað varðar rekstur og íbúðaruppbyggingu.
Dagskrá
Tækifæri og áskoranir á Vesturlandi
Páll Brynjarsson, framkvæmdastjóri SSV
Staða íbúðauppbyggingar
Elmar Erlendsson, framkvæmdastjóri hjá HMS
Stafræn byggingarleyfi
Hugrún Ýr Sigurðardóttir, verkefnastjóri hjá HMS
Lánastarfsemi Byggðastofnunar
Hrund Pétursdóttir, forstöðumaður Fyrirtækjasviðs Byggðastofnunar
Nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina
Lóa Auðunsdóttir, sérfræðingur hjá HVIN
Aukum hagkvæmni og skilvirkni í íbúðauppbyggingu
Friðrik Ágúst Ólafsson, viðskiptastjóri hjá SI
Húsið opnar kl. 11:15 og verður boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn. Fundarstjóri er Guðveig Lind Eyglóardóttir formaður stjórnar SSV.
Við bjóðum alla velkomna á fundinn og hlökkum til að sjá ykkur 14. nóvember.
Linkur á viðburð á facebook: https://fb.me/e/1IMiJdq33