Dagana 16.–17. mars verður haldin 2 daga nýsköpunarvinnustofa í Innovation Hub Hvanneyri.
Við skoðum hvernig hugmyndir verða að raunverulegum verkefnum og sprotafyrirtækjum.
Til að gera vinnuna hagnýta munum við vinna með 5 íslensk sprotafyrirtæki sem dæmi, en þátttakendur eru hvattir til að koma með sínar eigin hugmyndir til að ræða og þróa.
Fyrritæki sem koma fram eru:
Svepparíkið – Þróar sjálfbært ræktunarkerfi fyrir sælkerasveppi sem nýtir lífræna hliðarstrauma úr landbúnaði í hringrásarvæna matvælaframleiðslu.
Sveppasmiðjan – Byggir upp samþætt aquaponics-kerfi þar sem sveppir, grænmeti og fiskar eru ræktaðir saman í sjálfbæru framleiðslu- og rannsóknarumhverfi.
Lava Seaweed – Þróar landbundna ræktun á rauðþörungum sem nýtir næringarríkt frárennslisvatn úr fiskeldi í hringrásarkerfi.
Hvammsskel – Fjölskyldurekið fyrirtæki sem vinnur að uppbyggingu bláskeljaræktar í Hvammsfirði og aukinni framleiðslu íslenskrar skeljar.
Stormur – Þróar lausnir þar sem gagnaver eru staðsett þannig að orka og afgangshiti nýtist betur í samfélaginu.
Hringvarmi – Nýtir afgangshita frá gagnaverum til að knýja staðbundnar einingar fyrir matvælaframleiðslu og bæta orkunýtingu.
Sea Growth – Þróar frumuræktað sjávarfang þar sem fiskfrumur eru ræktaðar til að framleiða sjálfbæran fisk án veiða eða hefðbundins fiskeldis.
Skráning á facebook viðburði
💡 Sprota, rannsóknarhugmynd, lausn í sjálfbærni eða eitthvað allt annað — allar hugmyndir velkomnar.
Þú þarft ekki að vera með fullmótaða hugmynd – bara forvitni og áhuga.
📍 Innovation Hub Hvanneyri
📅 16.–17. mars
👥 Nemendur • Sprotar • Nýsköpunaráhugafólk
Hefur þú áhuga? Þátttaka er ókeypis, hlökkum til að sjá þíg!
