Alma og Hafþór mætt til starfa á skrifstofu SSV

SSVFréttir

Nýjir starfsmenn hafa hafið störf á skrifstofu SSV við Bjarnabraut í Borgarnesi. Alma Auðunsdóttir hóf störf á skrifstofu SSV á Bjarnabraut í Borgarnesi í lok mars mánaðar en Alma mun sjá um bókhald og fjármálastjórnun ásamt verkefnastjórnun Uppbyggingarsjóðs Vesturlands. Alma er með B.Sc. í Viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst og stundaði framhaldsnám í  Alþjóðamarkaðsfræði og stjórnun (IMM) við Copenhagen Buisness School. Við bjóðum Ölmu hjartanlega velkomna til starfa.

Hafþór Ingi Gunnarsson hóf störf á skrifstofu SSV í liðinni viku. Hafþór mun starfa sem verkefnastjóri miðlunar og markaðsmála en Hafþór er með B.Sc. í Ferðamálafræðum frá Háskólanum á Hólum. Við bjóðum Hafþór einnig hjartanlega velkominn til starfa.