Í gær kynntu Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra úthlutun ársins úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða og Landsáætlun um uppbyggingu innviða. Fjármununum er úthlutað til uppbyggingu innviða, náttúruverndar og annarra verkefna á ferðamannastöðum árið 2021. Samtals er nú úthlutað 764 milljónum króna úr Landsáætlun um uppbyggingu innviða og 807 milljónum úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða sem gerir kleift að …
Velferðarmálin og menningin eru umræðuefni vikunnar í hlaðvarpi SSV
Þá er þriðji þáttur hlaðvarps SSV- Vesturland í sókn komin í loftið. Hvað er velferðastefna og hvað er að frétta af menningunni á Vesturlandi? Hvað gerir velferðar- og menningarfulltrúi? Í þætti vikunnar ræða Sigursteinn Sigurðsson velferðar- og menningarfulltrúi og Thelma Harðardóttir verkefnastjóri þróunarverkefna um allt sem tengist menningu og velferð á Vesturlandi, mikilvægi þess að styðja við innviðina og hvaða …
Samningur um Áfangastaðastofu Vesturlands undirritaður
Þann 1. mars undirrituðu þær Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir atvinnu- og nýsköpunarráðherra og Lilja B. Ágústsdóttir formaður SSV samstarfssamning um stofnun Áfangastaðastofu Vesturlands. Markmið samningsins er að efla stoðkerfi ferðaþjónustunnar og stuðla að framþróun ferðamála og uppbyggingu á Vesturlandi til að efla landshlutann sem eftirsónarverðan áfangastað. Eitt af meginverkefnum áfangastaðastofu er að vinna og gefa út Áfangastaðaáætlun Vesturlands þar sem …
Vesturland – samráðsfundur um stöðu samgöngumála
SKRÁNING Á FUNDINN Sjá nánar á vef um grænbók um samgöngumál
Hlaðvarp SSV – Vesturland í sókn
Nú hefur hafið göngu sína hlaðvarp á vegum Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi sem ber heitið „Vesturland í sókn“. Hlaðvarpið, sem er framtak starfsmanna SSV, mun hafa þann tilgang að fræða fólk um störf SSV og verkefnin sem eru í brennidepli hverju sinni. Þá er stefnt að því að kynnast nánar þeirri atvinnuþróun og menningarstarfsemi sem á sér stað á Vesturlandi …
Þjóðahátíð Vesturlands með breyttu sniði
Eins og í svo mörgum menningarverkefnum setti Covid19 strik í reikning viðburðahalds síðasta árs. Eitt af þessum verkefnum er hin árlega Þjóðahátíð Vesturlands sem Félag nýrra Íslendinga (Society of New Icelanders) heldur utanum. En þau voru ekki af baki dottin og hafa sett saman hátíð með nýju sniði á Youtube. Þar getur ýmissa grasa og m.a. er hægt að sjá …
Áfangastaðaáætlun Vesturlands kom út í dag
Í dag kom út önnur útgáfa af Áfangastaðaáætlun Vesturlands sem gildir fyrir árin 2021-2023. Í henni er sett fram áætlun um áherslur, uppbyggingu og þróun ferðamála í landshlutanum næstu þrjú árin. Um er að ræða nokkurs konar stefnumótun og verkefnaáætlun sem nýtist jafnt fyrirtækjum, sveitarfélögum og öðrum sem láta sig málin varða. Ítarlega frétt má finna á vef Skessuhorns. Skýrslan …
Húsnæði fyrir störf án staðsetningar
Við vekjum athygli á þessu mælaborði inn á vef Byggðastofnunar. Um er að ræða mælaborð á korti sem sýnir staðina sem geta tekið við fólki sem vinnur starf án staðsetningar. Nánar á:
Ert þú að leita þér að vinnurými? Viltu vera þátttakandi í lifandi og skapandi samfélagi?
Hugheimar hafa sett í loftið könnun sem er gerð til þess að greina eftirspurn eftir vinnurými og aðstöðu fyrir einstaklinga og sprotafyrirtæki í Borgarbyggð. Niðurstöðurnar verða nýttar til að móta aðgerðir Hugheima til að koma til móts við þær þarfir sem eru til staðar. Til stendur að bjóða aðstöðu á sem hagstæðustum kjörum fyrir einstaklinga í fjarvinnu, fyrir frumkvöðla sem …
Lóa – nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina
Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra auglýsir eftir umsóknum um Lóu – nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina. Hlutverk styrkjanna, sem nú verða veittir í fyrsta sinn, er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni, á forsendum svæðanna sjálfra. Lóa styður við nýsköpunarstefnu og er liður í breytingum á opinberu stuðningsumhverfi nýsköpunar vegna fyrirhugaðar niðurlagningar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Umsóknarfrestur er …