Áfanga- og markaðssvið SSV er þessa dagana og næstu vikur að vinna að verkefni sem felur í sér að vinna með heimafólki að gerð staðbundinna leiðbeininga fyrir skemmtiferðaskip og skipafarþega á Snæfellsnesi. Verkefnið er unnið í samvinnu við Sveitarfélagið Stykkishólm, Grundarfjarðarbæ, Snæfellsbæ, Þjóðgarðinn Snæfellsjökul, Svæðisgarðinn Snæfellsnes og AECO (The Association of Arctic Expedition Cruise Operators. Að auki kemur Sigurborg Kr. …
Listahátíðir á Vesturlandi 2024 – Open Call
Athugið breyttan umsóknarfrest, 14. apríl Ertu með hugmynd að spennandi listahátíðum á Vesturlandi? Við köllum eftir hugmyndum af hátíðum á svæðum á Vesturlandi þar sem listahátíðir eru alla jafna ekki að fara fram og uppfylla skilyrði sem sett eru fram verkefninu. „Listahátíðir á Vesturlandi“ er hluti af áhersluverkefninu „Menningargróska“ og er sett fram til að efla framboð á faglegum listahátíðum …
Nýir starfsmenn hjá SSV
Í síðustu viku voru ráðnir tveir nýir starfsmenn til starfa SSV, en ráðningarferlið var unnið með Hagvangi. Hrafnhildur Tryggvadóttir var ráðin í starf atvinnuráðgjafa, en 12 umsóknir bárust um starfið. Hrafnhildur er með BSc próf í náttúruvísindum og umhverfisfræði frá LBHÍ og master í forustu og stjórnun með áherslu á verkefnastjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Hún starfaði í 9 ár …
Eyrarrósin 2023
Fréttatilkynning frá Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Icelandair 15. mars 2023 Hver hlýtur Eyrarrósina 2023? Auglýst eftir tilnefningum um framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni Í átjánda sinn auglýsa Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Icelandair nú eftir umsóknum um Eyrarrósina. Viðurkenningin er veitt framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni sem hefur fest sig í sessi. Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 miðvikudaginn 13. apríl. …
Ársskýrsla DalaAuðs er komin út
Verkefnið DalaAuður er samstarfsverkefni SSV, Byggðastofnunar og Dalabyggðar. Verkefnið hófst í mars 2022. Markmið verkefnisins voru samþykkt á íbúafundi í ágúst sama ár og settur fram tímasettur verkefnalisti. Í ársskýrslunni má m.a. sjá framgang verkefnanna og yfirlit yfir styrkþega Frumkvæðissjóðs frá árinu 2022. Ársskýrsluna má nálgast á vef Byggðastofnunar
Aðalfundur SSV fer fram 22. mars
Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi fer fram á Hótel Hamri, Borgarnesi miðvikudaginn 22. mars 2023. Sama dag verða einnig aðalfundir Starfsendurhæfingar Vesturlands, Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands, Heilbrigðisnefndar Vesturlands og Sorpurðunar Vesturlands. Dagskrá miðvikudaginn 22. mars verður sem hér segir: Kl.09:30 Aðalfundur Starfsendurhæfingar Vesturlands Kl.10:15 Aðalfundur Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands Kl.11:15 Aðalfundur Heilbrigðisnefndar Vesturlands Kl.12:15 Hádegisverður Kl.13:00 Aðalfundur Sorpurðunar Vesturlands Kl.14:00 Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á …
Minnisblað um ráðstöfun dýraleifa
Ráðstöfun dýraleifa (eða aukaafurða dýra) hefur lengi verið eitt helsta vandamálið í úrgangsstjórnun á Íslandi, en með dýraleifum er átt við sláturúrgang, dýrahræ og hvers konar úrgang annan sem til fellur vegna meðhöndlunar eða úrvinnslu dýraafurða. Stefán Gíslason hjá Environice hefur unnið minnisblað fyrir Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi og er það aðgengilegt á þessari slóð: Minnisblað um ráðstöfun dýraleifa
Lóa Nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina – umsóknarfrestur til 27 mars n.k.
https://www.stjornarradid.is/verkefni/atvinnuvegir/nyskopun/loa-nyskopunarstyrkir-fyrir-landsbyggdina/?fbclid=IwAR1TX4d4rdoAUlLhsh-eJsxxgZ03zrquwWVDAFaQhVmL4zYD7DVv6IYitXM
Júlíana – hátíð sögu og bóka haldin í tíunda sinn
Dagana 23.-25. mars verður blásið til listahátíðar í Stykkishólmi, en þá fer fram Júlíana – hátíð sögu og bóka. Að þessu sinni verður mikið um dýrðir en hátíðin fagnar tíu ára afmælishátíð, en hún var stofnuð árið 2013. Yfirskrift hátíðarinnar í ár er „Nýir Íslendingar: Áhrif þeirra í skrifum og listum“. Það er mjög viðeigandi í ljósi þess að við …