Gleðilegt sumar.
Stjórn og starfsfólk Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi óskar öllum gleðilegs sumars.
Aðalfundur SSV á Hótel Hamri.
Aðalfundur SSV var haldinn á Hótel Hamri 19 mars s.l. Sama dag héldu Starfsendurhæfing Vesturlands, Símenntunarmiðstöð Vesturlands, Heilbrigðisnefnd Vesturlands og Sorpurðun Vesturlands sína aðalfundi. Um 50 sveitarstjórnarfulltrúar og gestir sóttu fundina. Á aðalfundi SSV var lögð fram árskýrsla samtakanna, en þar kom fram að starfsemi SSV var með svipuðum hætti og undanfarið en verkefni tengd Sóknaráætlun Vesturlands verða sífellt umfangsmeiri. …
Gleðilega páska.
Stjórn og starfsfólk Samtaka Sveitarfélaga á Vesturlandi óskar öllum gleðilegrar páskahátíðar .
Nýr Hagvísir: Fasteignamarkaður á Vesturlandi
Í síðustu viku kom út Hagvísir Vesturlands sem tekur nú fyrir stöðuna á fasteignamarkað Vesturlands. Meðal niðurstaðna er: Íbúðaverð hefur hækkað mikið á Íslandi sl. þrjú til fimm ár, einkum á höfuðborgarsvæðinu, en það hafa tekjur heimilanna líka gert. Þegar fjöldi íbúða er bara borinn saman við íbúa á aldrinum 18-75 ára var rýmra um fólk árið 2016 en 1994 …
Úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs Vesturlands í Amtsbókasafninu í Stykkishólmi.
Föstudaginn 23. Mars. s.l. fór fram úthlutunarhátíð á styrkjum Uppbyggingarsjóðs Vesturlands í nýja Amtsbókasafninu í Stykkishólmi, úthlutað voru kr 40.425.000 til 78 verkefna, en alls bárust 129 umsóknir. Páll S. Brynjarsson setti athöfnina og þau Elísabet Haraldsdóttir Menningarfulltrúi og Ólafur Sveinsson forstöðumaður atvinnuráðgjafar afhentu styrkina ásamt Helenu Guttormsdóttur formanni úthlutunarnefndar. Tónlistarskólinn í Stykkishólmi var með tónlistaratriði þar sem þau László …
Úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs Vesturlands í Stykkishólmi.
Úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs Vesturlands verður föstudaginn 23. mars. í Amtsbókasafninu í Stykkishólmi n.k. kl. 14. Umsóknir bárust um 129 styrki og ákvað Úthlutunarnefnd á fundi sínum 6. mars s.l. að úthluta samtals kr.40.245.000 til 78 umsókna.
Uppbyggingarsjóður Vesturlands úthlutar styrkjum.
Uppbyggingarsjóður Vesturlands auglýsti eftir umsóknum í sjóðinn í janúar s.l. Alls bárust 129 umsóknir. Úthlutunarnefnd ákvað á fundi sínum 6. Mars s.l. að úthluta samtals kr.40.245.000 til 78 umsókna. Upplýsingar um niðurstöður úthlutunarnefndar hafa verið sendar til umsækjenda. Úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs Vesturlands verður haldin í Amtsbókasafninu í Stykkishólmi föstudaginn 23 mars og hefst kl.14.00
Rósa Gréta ráðin til Markaðsstofu Vesturlands
Rósa Gréta Ívarsdóttir hefur verið ráðin forstöðukona Markaðsstofu Vesturlands, en hún mun taka við starfinu af Kristjáni Guðmundssyni sem hefur verið ráðinn markaðsstjóri Ferðaþjónustunnar á Húsafelli. Rósa var valin úr hópi 30 umsækjenda og mun hún hefja störf 1 apríl n.k. Rósa er 35 ára gömul og fædd og uppalin á Vesturlandi. Hún útskrifaðist sem viðskiptafræðingur árið 2009 og stundar …
Forsætisnefnd sænska þingsins á Vesturlandi.
Nýverið heimsótti forsætisnefnd sænska þingsins Vesturland. Heimsóknin byrjaði í Landnámssetrinu í Borgarnesi þar sem þeir Vífill Karlsson hagfræðingur hjá SSV og Páll S. Brynjarsson framkvæmdastjóri SSV voru með erindi um byggðamál, stöðu sveitarfélaga á Íslandi og samstarf þeirra. Þá kynnti Kjartan Ragnarsson starfsemi Landnámssetursins fyrir gestunum. Að lokinni heimsókn í Borgarnes fór nefndin í Grundarfjörð þar sem hún kynnti sér …