List fyrir alla kallar eftir listviðburðum!

SSVBarnó, Fréttir

List fyrir alla auglýsir eftir umsóknum um listviðburði og verkefni á sviði barnamenningar fyrir grunnskólabörn.

List fyrir alla er barnamenningarverkefni á vegum menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins. Markmið verkefnisins er að miðla fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum til barna og ungmenna um land allt og jafna þannig aðgengi grunnskólabarna að listum óháð búsetu og efnahag.

Starfandi listamenn, stofnanir og aðrir lögaðilar sem sinna barnamenningu á einhvern hátt geta sótt um. Umsóknarfrestur er til 22. mars 2026.

Mat á umsóknum

Valnefnd metur umsóknir með hliðsjón af markmiðum verkefnisins. Listviðburðir og verkefni skulu í öllum tilvikum unnin af metnaði og af fagfólki. Við mat á umsóknum er valnefnd heimilt að leita umsagnar, ef þörf krefur.

Ákvörðun um úthlutun mun liggja fyrir eigi síðar en 29. maí 2026.

Umsóknir skulu sendar inn rafrænt á heimasíðu List fyrir alla.

Mynd: Frá tónlistarsmiðju Takts og texta í Sögumiðstöðinni á Grundarfirði á BARNÓ 2025