Lausnir í úrgangsmálum í nokkrum sveitarfélögum í Noregi og Svíþjóð.
Hér fyrir neðan má sjá samantekt úr skoðunarferð stjórnarmanna sorpsamlaga á suðvesturhorni Íslands 25.-28. júní 2017 Lausnir í úrgangsmálum í Noregi og svíþjoð Upplýsingar um gjaldskrá og annað er varðar Sorpurðun Vesturlands má finna á heimasíðu Sorpurðunarinnar. Sorpurðun Vesturlands
Opið fyrir umsóknir í Uppbyggingasjóð Vesturlands.
AUGLÝST EFTIR UMSÓKNUM Í UPPBYGGINGARSJÓÐ VESTURLANDS Veittir verða atvinnuþróunar og nýsköpunarstyrkir, menningarstyrkir ásamt stofn- og rekstrarstyrkjum til menningarverkefna. Umsóknarferlið er á Ísland.is og notast er við Íslykil til innskráningar. https://innskraning.island.is/?id=soknaraaetlun.is.ssv Nánari upplýsingar í síma 433-2310 eða senda fyrirspurn til uppbyggingarsjodur@ssv.is Frestur til að skila inn umsóknum rennur út á miðnætti 17. janúar 2018. Endurskoðaðar úthlutunarreglur Uppbyggingasjóðs má sjá hérna: Uppbyggingasjóður …
Vínlandssetur og Kaja organic fá öndvegisstyrki Uppbyggingarsjóðs Vesturlands.
Nýverið samþykkti Uppbyggingarsjóður Vesturlands að veita Vínlandssetri í Búðardal og Kaju Organic á Akranesi öndvegisstyrki sjóðsins. Í haust auglýsti sjóðurinn eftir hugmyndum að verkefnum sem gætu hlotið öndvegisstyrk úr sjóðnum. Alls bárust tillögur að 10 verkefnum og var það niðurstaða stjórnar Uppbyggingarsjóðs Vesturlands að velja þrjú verkefni sem fengu stuðning til að vinna viðskiptaáætlanir um frekari útfærslu. Eitt verkefnanna dró …
Ert þú með nýja hugmynd eða fyrirtæki í ferðaþjónustu?
Ert þú með nýja hugmynd eða fyrirtæki í ferðaþjónustu? Startup Tourism er tíu vikna viðskiptahraðall sem er sniðinn að þörfum nýrra fyrirtækja í ferðaþjónustu. Ár hvert eru allt að tíu sérvalin sprotafyrirtæki valin til þátttöku og fá þau tækifæri til að þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar undir leiðsögn reyndra frumkvöðla, fjárfesta og annarra sérfræðinga þeim að kostnaðarlausu. Markmið verkefnisins er að …
Asco Harvester fékk frumkvöðlaverðlaun SSV árið 2017.
Fyrirtækið Asco Harvester fékk Frumkvöðlaverðalaun SSV á frumkvöðladeginum sem haldinn var í Háskólanum á Bifröst miðvikudaginn 8 nóvember s.l. Asco Harvester ehf. er fjölskyldufyrirtæki sem varð til eftir áralanga þróun á sjávarsláttuvélinni Asco. Þeir sem koma að fyrirtækinu á einn eða annan hátt eiga tengingu í Breiðafjörðinn og hafa þekkingu og reynslu á þangöflun, þangvinnslu, skipasmíði og sjómennsku. Þau systkinin …
Tæknimessa í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi.
Fimmtudaginn 9 nóvember verður haldin Tæknimessa í Fjölbrautarskóla Vesturlands á Akranesi (FVA). Á Tæknimessu mun FVA kynna iðnnámsbrautir skólans, auk þess sem ýmis fyrirtæki sem starfa á Vesturlandi kynna starfsemi sína. …
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið styrkir uppbyggingu Fab-lab smiðju á Akranesi.
Nýverið undirrituðu Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ráðherra og Rakel Óskarsdóttir formaður SSV samning um stuðning atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis við uppbyggingu stafrænnar smiðju, Fab-lab á Akranesi. Smiðjan hefur undanfarin ár verið starfrækt í Fjölbrautarskóla Vesturlands en verður nú flutt yfir í nýsköpunarsetrið Coworking í gamla Landsbankahúsinu á Akranesi. Stuðningur ráðuneytisins verður nýttur til þess að efla starfsemina á nýjum stað og …
Frumkvöðladagur SSV.
Frumkvöðladagur SSV verður haldinn í Hriflu í Háskólanum á Bifröst miðvikudaginn 8. nóvember n.k. Dagskrá hefst kl.14.00. Vilhjálmur Egilsson rektors Háskólans á Bifröst flytur ávarp, Úthlutað verður styrkjum til nýsköpunar og atvinnuþróunar úr Uppbyggingarsjóði SSV Viðar Reynisson hjá Náttskugga (Ljótu kartöflurnar), ásamt frumkvöðlum af Vesturlandi þeim Hraundísi Guðmundsdóttir og Karen Jónsdóttir verða með erindi um starfsemi frumkvöðla . Afhending frumkvöðlaverðlauna …
Skrifað undir viðaukasamning við Sóknaráætlun Vesturlands.
Nýverið skrifuðu þau Jón Gunnarsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Þórdís Kolbrún Gylfadóttir ferðamála- og nýsköpunarráðherra ásamt Rakel Óskarsdóttur formanni SSV undir viðaukasamning við Sóknaráætlun Vesturlands. Þar kemur fram að ráðuneytin munu leggja fram kr. 40.000.000 til uppbyggingar Vínlandsseturs í Leifsbúð í Búðardal. Þessi samningur er gerður til þess að styrkja ferðaþjónustu í Dalabyggð og treysta byggð í sveitarfélaginu sem hefur átt …