Umsóknarfrestur um lán með lánatryggingu er til 15.október 2021.
Búið er að opna fyrir umsóknir í Svanna-lánatryggingasjóð kvenna sem er nú að hefja sitt þriðja starfstímabil. Svanni veitir lán til fyrirtækja í eigu konu/kvenna og er hámarkslán 10 milljónir. Sjóðurinn er í samstarfi við Landsbankann, er veitir lánin.
Sjóðurinn veitir lán með lánatryggingum til fyrirtækja í meirihlutaeigu kvenna og er hann liður í viðleitni stjórnvalda til að efla atvinnulíf og hvetja til nýsköpunar á Íslandi. Samkvæmt samþykktum sjóðsins eru hlutverk hans m.a. að styðja við bakið á konum sem eiga og reka smærri fyrirtæki, að auka aðgengi kvenna að fjármagni, að fjölga störfum og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Sjóðurinn er í eigu forsætisráðuneytis, atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis og Reykjavíkurborgar.
Skoða má nánari upplýsingar um lánareglur og lánskjör á heimasíðu sjóðsins, sjá hér https://atvinnumalkvenna.is/lan/
Fjölmörg spennandi fyrirtæki hafa fengið fyrirgreiðslu hjá sjóðnum á undanförnum árum og er ljóst að þörfin á sjóð sem slíkum er mikil.
Hér má finna umfjöllun um lán sem voru samþykkt í vor
Hér má finna hlaðvarpsviðtal við Guðrúnu Tinnu Ólafsdóttur, formann sjóðsins
Hér má finna hlaðvarpsviðtal við Ásdísi Guðmundsdóttur, starfsmann sjóðsins
Skoðaðu möguleikana með Svanna!
Smelltu hér til að sækja um