Haustþing SSV áréttar mikilvægi þess að skapa stöðugt og samkeppnishæft rekstrarumhverfi fyrir atvinnulíf á Vesturlandi. Þingið leggur áherslu á að efla nýsköpun, rannsóknir og atvinnuþróun um allt land og tryggja að landsbyggðin hafi jafnan aðgang að opinberu fjármagni og stuðningsúrræðum. Þá er jafnframt kallað eftir fjölgun ríkisstarfa og auknum tækifærum til fjarvinnu utan höfuðborgarsvæðisins.
Í ályktununum er lögð sérstök áhersla á mikilvægi frumframleiðslugreina. Þingið vill styrkja stöðu íslensks landbúnaðar og matvælaframleiðslu með bættri umgjörð fyrir nýliðun, rannsóknum og nýsköpun. Jafnframt er bent á að innlend matvælaframleiðsla gegni lykilhlutverki fyrir fæðuöryggi, byggðafestu og verðmætasköpun í dreifðum byggðum landsins.
Varðandi sjávarútveg leggur þingið áherslu á fyrirsjáanleika og stöðugleika í rekstrarumhverfi greinarinnar. Kallað er eftir auknum rannsóknum á auðlindum hafsins við Vesturland og að hagsmunir lítilla og meðalstórra útgerða verði hafðir að leiðarljósi við stefnumótun og lagasetningu.
Þá er áréttað mikilvægi Grundartanga sem eins helsta atvinnu- og iðnaðarsvæðis landsins. Þingið telur mikilvægt að tryggja samkeppnishæfni fyrirtækja á svæðinu og styðja áfram við uppbyggingu grænna iðngarða og nýrrar atvinnustarfsemi sem byggir á orkuskiptum, nýsköpun og sjálfbærni.
Loks leggur þingið ríka áherslu á ferðaþjónustu sem burðarstoð í atvinnulífi landshlutans. Kallað er eftir aukinni fjárfestingu í innviðum, tryggari fjármögnun áfangastaðastofa og sanngjarnri tekjuöflun sveitarfélaga til að mæta auknu álagi af vaxandi ferðamannafjölda. Um leið er varað við að breytingar á gjaldtöku eða skattheimtu dragi úr samkeppnishæfni greinarinnar og getu hennar til áframhaldandi verðmætasköpunar.
Hægt er nálgast ályktunina hér
