Haustþing SSV leggur ríka áherslu á að tryggja jafnt aðgengi að menntun, menningu og opinberri þjónustu óháð búsetu. Í ályktun þingsins er lögð sérstök áhersla á að efla menntakerfið á öllum skólastigum, styrkja menningarinnviði á Vesturlandi og tryggja öfluga löggæslu og almannavarnir í landshlutanum.
Á sviði menntamála kallar þingið eftir auknum stuðningi við leik- og grunnskóla, sérstaklega til að mæta þörfum fjölbreytts nemendahóps og tryggja öfluga stoðþjónustu. Jafnframt er lögð áhersla á sjálfstæði framhaldsskóla og áframhaldandi uppbyggingu iðn- og verkmenntunar til að mæta þörfum atvinnulífsins. Þingið telur jafnframt mikilvægt að tryggja jafnt aðgengi að háskólanámi um allt land með auknu framboði fjarnáms, sterkum háskólum á landsbyggðinni og hvötum fyrir menntað fólk til að starfa utan höfuðborgarsvæðisins.
Í menningarmálum er lögð áhersla á aukið jafnræði við úthlutun opinberra menningarstyrkja og að Vesturland fái sambærilegan stuðning til uppbyggingar menningarinnviða, t.d. menningarhúsa eins og aðrir landshlutar. Vesturland hefur ekki notið sambærilegrar aðkomu ríkisins að uppbyggingu fjölnota menningarhúsa eins og víða annars staðar á landsbyggðinni. Þingið telur þá mikilvægt að efla söfn, menningarhús og aðra menningarstarfsemi sem styrkir samfélög, eykur aðdráttarafl svæðisins og skapar grundvöll fyrir frekari atvinnuuppbyggingu í skapandi greinum.
Þá leggur þingið áherslu á að breytingar á skipulagi opinberrar þjónustu leiði ekki til skerðingar á þjónustu við íbúa landsbyggðarinnar. Kallað er eftir því að starfsstöðvar Sýslumanns Íslands á Vesturlandi verði efldar, að fjármögnun lögregluverkefna verði tryggð og að gætt verði að hagsmunum svæðisins við mögulegar breytingar á lögregluumdæmum.
Að lokum undirstrikar þingið mikilvægi öflugra almannavarna og öruggra fjarskipta. Áhersla er lögð á auknar rannsóknir og vöktun náttúruvár, samræmdar viðbragðsáætlanir og tryggan rekstrargrundvöll fyrir almannavarnastarf á svæðinu. Að mati þingsins eru sterkir innviðir, örugg samskipti og gott samstarf viðbragðsaðila lykilforsendur fyrir öryggi íbúa og áframhaldandi þróun samfélaga á Vesturlandi.
Hægt er að nálgast ályktun hér
