Fyrsti allsherjarfundur landshlutasamtaka sveitarfélaga, markaðsstofa landshlutanna og Byggðastofnunar lauk í Borgarnesi í gær eftir tveggja daga dagskrá dagana 11.-12. nóvember. Fundurinn markaði tímamót þar sem þessir aðilar komu í fyrsta sinn saman á einum vettvangi til að ræða sameiginleg verkefni, miðla reynslu og styrkja samstarf um byggðaþróun um land allt. Fundurinn var haldin í Hjálmakletti í Borgarnesi.
Páll S. Brynjarsson framkvæmdarstjóri SSV setur fundinn í Hjálmakletti.
Menningarfulltrúar landshlutasamtaka funduðu saman.
Á fundinum voru kynnt árangursrík verkefni úr ólíkum landshlutum og fjallað um framtíð stoðkerfis byggðaþróunar á Íslandi. Þátttakendur, sem komu víðs vegar að af landinu, tóku þátt í vinnustofum og umræðum þar sem sjónum var beint að sameiginlegum áskorunum og tækifærum í atvinnuþróun, menningu, ferðaþjónustu og málefnum sveitarfélaga. Einnig var horft til erlendra fyrirmynda og rætt hvernig megi efla upplýsingamiðlun, samstarf og þróun verkefna þvert á landshluta.
Markaðsstofur landshlutasamtaka funduðu saman.
Framkvæmdarstjórar landshlutasamtaka. Páll S. Brynjarsson frá SSV, Sigríður Ó. Kristjánsdóttir frá Vestfjarðarstofu, Bryndís Fiona Ford frá Austurbrú, Albertína Fr. Elíasdóttir, Sveinbjörg Rut Pétursdóttir frá SSNV og Páll Björgvin Guðmundsson frá SSH.
Mikil áhersla var lögð á þekkingarmiðlun og tengslamyndun, enda þótti fundurinn skapa mikilvægan vettvang fyrir sérfræðinga og stjórnendur sem starfa að byggðaþróun.
Atvinnuráðgjafar landshlutasamtaka funduðu saman ásamt Byggðastofnun.
Ritstjóri Skessuhorns heimsótti upplýsinga – og markaðsmiðlunarhóp landshlutasamtaka.
Samhliða faglegri dagskrá gafst þátttakendum kostur á að kynnast Vesturlandi betur með heimsóknum og samveru, sem getur stuðlað að auknu samstarfi og sterkari tengslum milli landshluta.
Samtal um menningu og ferðaþjónustu, þar sem Sigursteinn Sigurðsson menningarfulltrúi SSV stýrði umræðum með þeim Kjartani Ragnarssyni og Sigríði Margréti Guðmundsdóttur Landnámssetri, Bjarna Sigurbjörnssyni og Ragnheiði Guðmundsdóttur frá Himinbjörg Listhús og Gísla Einarssyni ritstjóra Landans.
Vífill Karlsson frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) kynnti áhugaverðar niðurstöður rannsókna.
Aðstandendur fundarins telja að með reglulegu samstarfi af þessum toga sé hægt að styrkja tengslanet þeirra sem starfa að byggðaþróun, auka samvinnu milli svæða og skapa ný tækifæri til nýsköpunar og framfara í íslenskum byggðum.
Hópurinn heimsótti Hvanneyri.
Íþróttahúsið á Hvanneyri skoðað.
Fundurinn í Borgarnesi er því talinn vera mikilvægt skref í átt að öflugra og samhæfðara samstarfi um þróun landsbyggðarinnar.
