Heiðursviðurkenningar fyrir löng og farsæl störf í sveitarstjórnarmálum

SSVFréttir

Haustþing SSV

Á vettvangi sveitarstjórnarmála á Vesturlandi hafa fjölmargir einstaklingar lagt af mörkum ómetanlegt starf í þágu síns samfélags og byggðar. Á Haustþingi SSV í ár voru heiðraðir fjórir einstaklingar fyrir áratugalangt framlag sitt til sveitarstjórnarstarfa, samvinnu sveitarfélaga og þróunar Vesturlands.

Einar Brandsson tók sæti í bæjarstjórn Akraness árið 2010 og hefur síðan gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir sveitarfélagið. Hann sat í stjórn Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) á árunum 2018–2022 og á ný frá 2025. Þá hefur hann tekið virkan þátt í starfi Sambands íslenskra sveitarfélaga, fyrst sem varamaður og síðar aðalmaður í stjórn þess.

Pétur Davíðsson hóf sveitarstjórnarferil sinn aðeins 24 ára gamall þegar hann tók sæti í hreppsnefnd Skorradalshrepps árið 1998. Frá þeim tíma hefur hann setið í fjölmörgum nefndum og verkefnum fyrir sveitarfélagið. Hann hefur jafnframt setið í stjórn SSV frá árinu 2022.

Björg Ágústsdóttir á að baki afar langan og fjölbreyttan feril í sveitarstjórnarmálum. Hún starfaði sem bæjarstjóri Grundarfjarðar samtals í 19 ár, sat í stjórn og formennsku SSV, leiddi skólanefnd Fjölbrautarskóla Snæfellinga um árabil og tók virkan þátt í undirbúningi Svæðisgarðs Snæfellinga. Þá lagði hún einnig sitt af mörkum sem ráðgjafi við gerð Sóknaráætlunar Vesturlands árið 2015.

Hrefna B. Jónsdóttir hóf störf hjá SSV árið 1995 og varð framkvæmdastjóri SSV og Sorpurðunar Vesturlands árið 2000. Hún gegndi lykilhlutverki í uppbyggingu og þróun samstarfs sveitarfélaga á Vesturlandi í rúma tvo áratugi og lét nýverið af störfum hjá Sorpurðun Vesturlands eftir farsælan starfsferil.

Heiðursviðurkenningarnar eru þakklætisvottur fyrir áralanga þjónustu, forystu og óeigingjarnt starf í þágu sveitarfélaga og íbúa Vesturlands. Framlag þeirra hefur haft varanleg áhrif á samfélögin sem þau hafa þjónað og styrkt samstarf sveitarfélaga um landshlutann.

Heiðursgjöf frá vestlenskum listamanni

Löng hefð er fyrir því að sveitarstjórnarfólk á Vesturlandi sem lætur af störfum eftir 16 ár eða lengri þjónustu fái að gjöf listaverk eftir vestlenskan listamann. Að þessu sinni var það sérstakur heiður að afhenda verk eftir myndlistarkonuna Þóru Sigurðardóttur, einn af fremstu listamönnum landsins.

Þóra hefur áratugum saman skapað sér einstakan sess í íslensku menningarlífi með fjölbreyttum verkum á sviði myndlistar, textíls, keramik og skúlptúra. Hún hefur jafnframt, ásamt eiginmanni sínum Sumarliða Ísleifssyni, byggt upp öflugt menningarsetur að Nýp á Skarðsströnd sem hefur haft veruleg áhrif á menningarstarf og skapandi atvinnulíf á Vesturlandi.

Heiðursgjöfin samanstendur af einstakri steinþrykksmynd eftir Þóru úr sérstakri myndröð, auk bókar um myndlistarferil hennar. Gjöfin er bæði þakklætisvottur fyrir óeigingjarnt starf í þágu samfélagsins og um leið viðurkenning á framlagi vestlenskrar listar og menningar.