Ný fyrirtækjakönnun landshlutanna 2025 kom út í dag og sýnir að dregið hefur úr ráðninga- og fjárfestingaráformum íslenskra fyrirtækja frá síðustu könnun. Þrátt fyrir það eru enn fleiri fyrirtæki sem hyggjast sækja fram en draga saman. Um 29% fyrirtækja vantar starfsfólk með ákveðna menntun og fjórðungur þeirra leitar að sértækri færni, einkum tengdri tæknikunnáttu, samskiptum og sjálfstæðum vinnubrögðum. Niðurstöðurnar benda jafnframt til þess að nýsköpun hafi dregist saman frá 2022. Hins vegar líta fyrirtæki á aukið samstarf, ný markaðssvæði og nýtingu tækni eins og gervigreindar, sem helstu sóknarfæri til framtíðar. Helstu hindranir sem fyrirtæki nefna eru skortur á fjármagni, tíma og starfsfólki, auk neikvæðra áhrifa opinbers regluverks og stjórnsýslu. Könnunin var framkvæmd á tímabilinu apríl til október 2025 og tóku 2.165 fyrirtæki þátt um allt land. Niðurstöður könnunarinnar má finna hér (SMELLIÐ).