Aðalfundur SSV miðvikudaginn 25 mars n.k.

SSVFréttir

 Aðalfundur SSV  fer fram á Hótel Borgarnesi miðvikudaginn 25. mars 2026 

 

 DAGSKRÁ  

1.Skýrsla  stjórnar um starfsemi liðins árs  
Ragnar Sæmundsson formaður SSV flytur skýrsluna  

2.Ársreikningur  SSV 
Páll S. Brynjarsson framkvæmdastjóri SSV kynnir reikningana   

3.Fjárhagsáætlun 2026 – Var samþykkt á Haustþingi SSV 2025   

4.Starfsáætlun 2026 – Var samþykkt á Haustþingi SSV 2025   

5.Kosning í stjórn SSV  –  

Kosningu vísað til auka aðalfundar SSV sem fer fram 1. Júlí 2026 

6.Kosning í þær nefndir sem starfa á milli aðalfunda. 
Aðalfundur þarf ekki að kjósa í neinar nefndir að þessu sinni  

7.Ákvörðun um laun og þóknun til stjórnar og nefnda  

8.Kosning endurskoðanda  

9.Önnur mál löglega fram borin  

Sama dag verða einnig aðalfundir: 

Starfsendurhæfingar Vesturlands, Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands, Heilbrigðisnefndar Vesturlands og Sorpurðunar Vesturlands.   

Dagskrá miðvikudaginn 25 mars verður sem hér segir:   

Kl.09.15 Aðalfundur Starfsendurhæfingar Vesturlands   

Kl.10.00 Aðalfundur Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands   

Kl.11.00 Aðalfundur Heilbrigðisnefndar Vesturlands   

Kl.12.30 Hádegisverður   

Kl.13.00 Aðalfundur Sorpurðunar Vesturlands   

Kl.14.30 Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi