Júlíana – Hátíð sögu og bóka sett í kvöld

SSVBarnó

Í kvöld verður formlega sett bókmenntahátíðin Júlíana – Hátíð sögu og bóka í Stykkishólmi. Setningin fer fram í Stykkishólmskirkju – Kirkjunni á borginni og hefst klukkan 20:00.

Hátíðin fer nú fram í 13. sinn og hefur fests í sessi sem ein af stóru listahátíðunum á Vesturlandi. Í kvöld verða formlega veittar viðurkenningar fyrir samkeppnir á vegum viðburðarins, þar með talin ljóðasamkeppni í samstarfi við Barnó – barnamenningarhátíð Vesturlands þar sem þremur ungum ljóðskáldum verða veittar formelga viðurkenningar.

Hátíðin er til minningar um Júlíönu Jónsdóttur skáldkonu sem fæddist í Borgarfirði árið 1838 en bjó lengst af í Stykkishólmi og á Akureyjum á Breiðafirði. Júlíana gaf út ljóðabókina Stúlka árið 1876 og var þá fyrsta konan til að gefa út ljóðabók á prenti. Einnig var hún fyrst íslenskra kvenna til að skrifa leikrit sem sett var upp í Stykkishólmi veturinn 1878 til 1879. Júlíana flutti til Vesturheims og þar kom út ljóðabókin Hagalagðar árið 1916. Júlíana lést í Winnipeg árið 1917. Í tilefni af því að 150 og 110 ár eru liðin frá útkomu ljóðabóka Júlíönu er nú komin út Ljóðmæli Júlíönu á vegum Forlagsins. Var bókinni, hátíðinni og sögu Júlíönu í Stykkishólmi gerð góð skil í bókmenntaþættinum Kiljan á RÚV þar sem Gréta Sigurðardóttir skipuleggjandi Júlíönu var til viðtals.

Júlíana Jónsdóttir er ein af þjóðskáldum Vesturlands og skipar sér í hóp breiðs hóps þjóðskálda, svo sem Guðmund Böðvarsson, Stein Steinarr og Davíðs Stefánssonar.

Sem fyrr segir er Júlíana – hátíð sögu og bóka sett í kvöld og er fjölbreytt dagskrá út helgina. Hátíðin var styrkt af Uppbyggingarsjóði Vesturlands.

Dagskrá Júlíönu – Hátíðar sögu og bóka 2026

Umfjöllun um Júlíönu í Kiljunni