Kynning á skýrslunni Kolefnisspor Vesturlands

SSVFréttir

Á dögunum fór fram rafrænn kynningarfundur á skýrslunni Kolefnisspor Vesturlands, sem unnin var af Environice ehf. Skýrslan er eitt af áhersluverkefnum Sóknaráætlunar Vesturlands og liður í markvissri vinnu við að efla þekkingu á loftslagsmálum og styðja við aðgerðir í átt að sjálfbærari þróun. Upptaka af fundinum er nú aðgengileg á miðlum SSV.

Í skýrslunni er lagt mat á heildarlosun gróðurhúsalofttegunda á Vesturlandi árið 2024. Heildarlosun landshlutans nemur um 2,39 milljónum tonna koldíoxíðsígilda, eða um 135 tonnum á hvern íbúa. Stærsti hluti losunar má rekja til landnotkunar, sem nemur um 55% af heildarlosun, og til stóriðju á Grundartanga, sem stendur undir um 35%. Losun sem tengist daglegum athöfnum samfélagsins er um 10% af heildinni.
Skýrslan dregur jafnframt fram möguleg tækifæri til samdráttar í losun og leggur til áherslur og aðgerðir sem geta styrkt stöðu Vesturlands í loftslagsmálum til framtíðar.

Fundurinn var sem fyrr segir í streymi og upptökuna má nálgast hér.

Skýrsluna má nálgast hér.