Menningar,- nýsköpunar- og háskólaráðuneyti kalla eftir umsóknum styrki til menningarviðburða í sundlaugum landsins. Tilefnið af styrkveitingunni er að íslensk sundlaugamenning var staðfest á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararfleið heimsins. Markmið styrkveitingarinnar er að stuðla að fjölbreyttu viðburðahaldi í sundlaugum um land allt og auðga menningarlíf í heimabyggð. Til úthlutunar eru 4 milljónir króna, en styrkur getur verið að hámarki 500.000 krónur. Skilyrt er að viðburðirnir/verkefnin fari fram árið 2026.
Hugmyndirnar geta verið fjöbreyttar og er hvatt til samstarfs menningarstofnanna, safna, listafólks og listhópa. Þannig getur verið tónlistarviðburður í lauginni, myndlistarsýningar á bakkanum eða gjörningar í sundlauginni sem sundlaugagestir geta notið. Á Vesturlandi hafa farið fram nokkur slík verkefni og meðfylgjandi eru myndir frá listviðburðum í sundi í landshlutanum.
Umsóknarfrestur er til 20. Mars 2026 og sótt er um í gegnum umsóknargátt ráðuneytisins. Nánari upplýsingar má nálgast hér.
Minnt er á að menningarfulltrúi SSV er til ráðleggingar er varðar menningarvarkefni.
Forsíðumynd: Hrekkjavökusund í Sundlauginni í Ólafsvík á BARNÓ 2025 – Í boði Svæðisgarðsins Snæfellsnes

Konukroppar, sviðsverk Sigríðar Ástu Olgerisdóttur og Snædísi Lilju Ingadóttur í Sundlauginni að Brautartungu í Norðurárdal

Sinfó í sund í Sundlauginni í Borgarnesi

Sundlaugadiskó í Sundlauginni í Borgarnesi á BARNÓ – BEST MEST VEST 2025
