SSV hlýtur tvo styrki úr byggðaáætlun

SSVFréttir

Innviðaráðherra hefur úthlutað 170 milljónum króna til fjórtán verkefna um land allt. Framlag til styrkjanna kemur af byggðaáætlun (aðgerð C.1 – Sértæk verkefni sóknaráætlanasvæða). Verkefni sem talin eru hafa varanleg áhrif, eru atvinnuskapandi og hvetja til nýsköpunar eru í forgangi. Tvö verkefni á Vesturlandi hlutu styrk að þessu sinni:

 

Sjálfbær ferðaþjónusta í Dölum

  • Styrkþegi: Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV)
  • Styrkupphæð: 9 m.kr.

Verkefnið er þríþætt. Í fyrsta lagi er um að ræða markaðsherferð fyrir Dalina sem áfangastað sem standa mun yfir í eitt ár. Í öðru lagi verður unnið náið með ferðaþjónum í gegnum vinnustofur, hóphandleiðslu og einstaklingsráðgjöf til að aðstoða þá í markvissri markaðssetningu. Í þriðja lagi er um að ræða mótun staðbundinnar stefnu í ferðaþjónustu með hagaðilum, með áherslu á nærandi ferðaþjónustu.

 

Búseta og samfélag í dreifbýli í sunnanverðum Snæfellsbæ

  • Styrkþegi: Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV)
  • Styrkupphæð: 11,5 m.kr.

Verkefnið felst í heildstæðri greiningu á forsendum búsetu og byggðafestu í dreifbýli í sunnanverðum Snæfellsbæ, skólahverfi Lýsuskóla. Unnin verður greining, sviðsmyndavinna og raunhæfar tillögur að leiðum til að efla íbúabyggð, fjölskyldubúsetu og samfélagsinnviði.

 

Nánari upplýsingar um úthlutunina má finna hér: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026/02/18/Byggdaaaetlun-170-milljonir-til-fjortan-verkefna-til-ad-efla-byggdir-landsins/