Alzheimersamtökin bjóða til fræðslu á Snæfellsnesi dagana 26. og 27. ágúst í Snæfellsbæ, Grundarfirði og Stykkishólmi þar sem starf samtakanna verður kynnt og fjallað um heilabilun, góð samskipti og stuðning við aðstandendur. Fræðslufundirnir eru opnir öllum áhugasömum og aðgangur er ókeypis.
Eitt af meginmarkmiðum Alzheimersamtakanna er að auka þekkingu og dýpka skilning á þeim áskorunum sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra standa frammi fyrir. Umræða um heilabilun er einnig mikilvægur þáttur til að minnka fordóma í samfélaginu og þess vegna leggja samtökin mikla áherslu á að fræða sem flesta.
Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri Alzheimersamtakanna og Ásta Kristín Guðmundsdóttir, ráðgjafi þeirra sjá um fræðsluna. Þær kynna starfsemi samtakanna og fjalla um heilabilun og leiðir til að bæta samskipti við einstaklinga sem glíma við slíkar raskanir.
Laufey Jónsdóttir, starfsmaður SSV og tengiráðgjafi Gott að eldast verkefnisins á Vesturlandi verður einnig með stutt erindi.
Tímasetning og staðsetning fræðslunnar er eftirfarandi:
þriðjudagur 26. ágúst kl. 17:00 – Klif félagsheimili í Snæfellsbæ – Viðburðurinn á Facebook
þriðjudagur 26. ágúst kl. 20:00 – Samkomuhúsið í Grundarfirði – Viðburðurinn á Facebook
miðvikudagur 27. ágúst kl. 17:00 – Höfðaborg í Stykkishólmi – Viðburðurinn á Facebook