Áhrifamikið verk prýðir nú austurvegg menningarhússins Dalíu í Búðardal og endurspeglar tengsl fólks og staðar í gegnum tíma og tilveru.
„Það táknar djúp tengsl okkar við landið og fólkið sem hefur komið í Dalina. Það tengir fortíð og nútíð og vísar til framtíðar. Í listinni vinnum við með sögur og hefðir, en tökum á móti nýjum sjónarmiðum og endurspeglum hvernig við tengjumst og höldum sameinuð áfram,”
segir listakonan Fitore Alísdóttir Berisha , sem vann verkið í samstarfi við menningarframleiðslufyrirtækið Kruss á Erpsstöðum.
Í Endurspeglun enduróma samtöl milli kynslóða og framtíðarsýn samfélags í stöðugri mótun. Verkið fangar ró, reisn og fjölbreytileika Búðardals, staðar sem lengi hefur verið áfangastaður ferðalanga og fólks á faraldsfæti.
Fitore er myndlistarkona frá Kosovo. Hún flutti fyrst til Íslands fyrir fimmtán árum og hefur skapað sér nafn með samfélagslega meðvitaðri list sem tengir rými, sögur og sjálfsmynd. Með Endurspeglun hefur hún veitt þöglum vegg rödd, og opnað nýja sýn á Dalina fyrir bæði heimamenn og gesti.
Bændurnir á Erpsstöðum, Þorgrímur og Helga reka menningarfyrirtækið Kruss sem hefur staðið fyrir margvíslegum uppákomum. Nú síðast í apríl þegar þau lýstu því yfir að jólasveinarnir kæmu úr Dölunum og eru þar að vinna með arfleifð Jóhannesar úr Kötlum og ljóðagerð hans. Um endurspeglun segir Þorgrímur:
„Við í Kruss höfum alltaf haft trú á því að veggir geti talað, og nú hefur það gerst í Dalíu með þessu frábæra listaverki sem Fitore hefur skapað. Þetta er ekki bara listaverk heldur er þetta samtal við fólkið sem á leið um Búðardal. Það er nákvæmlegea þetta sem við viljum standa fyrir, verkefni sem tengja saman fólk og hreyfa við því.“
Verkefnið fékk styrk úr Uppbyggingarsjóði sem er hluti af Sóknaráætlun Vesturlands og hefur m.a. það markmið að efla listir og menningarstarf um allan landshlutann.