Efni SSV vekur athygli

VífillFréttir

Vífill Karlsson var gestur í þættinum Samfélaginu á RÚV síðastliðinn föstudag. Þar ræddi hann meðal annars um aukaíbúðir, sem er viðfangsefni nýjasta Hagvísis Vesturlands, en líka íbúakannanir landshlutanna og ýmislegt tengt þeim. Þá voru nýlegar rannsóknir Rannsóknarstofnunar í byggða- og sveitarstjórnarmálum (RBS) ræddar. Þ.á.m. stærðarhagkvæmni í rekstri sveitarfélaga, þjónustu þeirra og hvaða ályktanir megi draga af þeim varðandi væntan árangur af sameiningu sveitarfélaga. SSV tengist rekstri RBS. Hlusta má á viðtalið með því að smella hér (SMELLIÐ).