Bára ráðin verkefnastjóri hjá SSV

SSVFréttir


Bára Daðadóttir, nýr verkefnastjóri
farsældarmála á Vesturlandi

 

Gengið hefur verið frá ráðningu verkefnastjóra farsældarmála hjá SSV, en til starfsins hefur verið ráðin Bára Daðadóttir félagsráðgjafi á Akranesi.

Bára hefur lokið BA í félagsráðgjöf og MA námi í félagsráðgjöf til starfsréttinda frá Háskóla Íslands og hefur víðtæka reynslu á sviði velferðar- og farsældarmála. Þannig hefur Bára starfað sem forstöðumaður félagsmiðstöðvar og verið félagsrágjafi hjá Akraneskaupstað og Kópavogsbæ. Hjá Akraneskaupstað tók Bára þátt í innleiðingu farsældarlaganna hjá bænum, en Akranes er í fararbroddi er kemur að málaflokknum á landsvísu.

Bára var valinn úr hópi níu umsækjenda og hlutverk hennar er að hafa umsjón með innleiðingu farsældarlaga hjá sveitarfélögunum á Vesturlandi, en SSV ritaði undir samstarfssamning þess efnis við Ásmund Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra á Farsældardeginum á Vesturlandi síðastliðið vor. Auk þess mun Bára sinna öðrum verkefnum eins og Ungmennaráði Vesturlands og samstarfsverkefninu Öruggara Vesturland, átaksverkefni gegn heimilisofbeldi á Vesturlandi.

Við óskum Báru til hamingju með starfið og bjóðum hana velkomna til starfa hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi.