Undanfarið hefur verið unnið að stöðugreiningu og samstarfsmöguleikum slökkviliða á Vesturlandi.
Stjórn SSV skipaði starfshóp sem í sátu fulltrúar fimm sveitarfélaga á Vesturlandi undir formennsku Ragnars B. Sæmundssonar. Starfshópurinn hafði það hlutverk að vinna stöðugreiningu og úttekt á samstarfsmöguleikum slökkviliða á Vesturlandi og skilar nú af sér vinnu í meðfylgjandi skýrslu. Stöðugreiningin byggir m.a. á skýrslu HMS um stöðu slökkviliða á Íslandsi sem út kom árið 2022 og á upplýsingum og viðhorfi slökkviliðsstjóra allra slökkviliða á Vesturlandi til ýmissa þátta í rekstrinum. Þá eru teknar saman upplýsingar um rekstur málaflokkksins úr ársreikningum sveitarfélaganna, og settar fram mögulegar sviðsmyndir breytinga á rekstri slökkviliða á Vesturlandi. Sviðsmyndir sem settar eru fram byggja á áðurnefndum gögnum, auk þess sem starfshópurinn heimsótti Brunavarnir Árnessýslu og kynnti sér starfsemina þar.
Skýrslan er aðgengileg hér: Slökkvilið á Vesturlandi – stöðugreining