Föstudaginn 12. janúar veitti Uppbyggingarsjóður Vesturlands styrki til 75 verkefna . Heildarupphæð styrkja nam 46.400.000 króna. Þetta er tíunda árið sem sjóðurinn úthlutar styrkjum til annars vegar menningarverkefna og hins vegar atvinnu- og nýsköpunarverkefna en sjóðurinn er hluti af Sóknaráætlun Vesturlands.
Að þessu sinni var úthlutunarhátíðin haldin í Hjálmakletti Borgarnesi og mættu rúmlega 120 manns. Páll S. Brynjarsson framkvæmdarstjóri SSV opnaði hátíðina og var kynnir. Dagskráin var fjölbreytt en auk styrkveitinga kynnti Ingibjörg Þóranna Steinudóttir verkefnið sitt “Urður Ullarvinnsla” sem hlaut veglegan styrk í ár. Þá steig á stokk söng- og leikkonan Sigríður Ásta Olgeirsdóttir og flutti tónlistaratriði en hún hlaut janframt styrk í sviðlistaverkefnið sitt sem hún nefnir „Óður til móður“. Í lokin var boðið upp á léttar veitingar og hátíðargestir tóku spjallið um menningu og atvinnulíf. Ólöf Guðmundsdóttir atvinnuráðgjafi kynnti úthlutunanir í flokki atvinnu- og nýsköpunarverkefna og Sigursteinn Sigurðsson menningarfulltrúa kynnti úthlutunanir í flokki menningarverkefna. Þá afhenti Helena Guttormsdóttir formaður úthlutunarnefndar styrkina ásamt því að loka hátíðinni.
Alls bárust 126 umsóknir, veittir voru styrkir til 75 verkefna en í heildina var sótt um samanlagt um rúmlega 190 mkr.
Þetta var fyrri úthlutun ársins en síðsumars verður aftur opnað fyrir umsóknir í flokki atvinnu- og nýsköpunarstyrkja. Að þessu sinni hlutu 13 verkefni styrki til atvinnuþróunar, alls 13.200.000 kr. Í flokki menningarverkefna hutu 56 verkefni styrki sem námu 27.450.000 kr. og þá voru veittar 5.750.000 kr. til 6 stofn- og rekstrarverkefna á sviði menningar.
Það er áhugavert að sjá hve mikil gróska er í atvinnu- og menningarlífi á Vesturlandi með öllum þessum fjölda umsókna og það er óhætt að segja að mörg áhugaverð og flott verkefni eru komin í gang eða í farvatninu.
Myndir af hátíðinni má sjá á Facebook síðu SSV
Hér má sjá hvaða verkefni hlutu styrk:
ATVINNU- OG NÝSKÖPUNARSTYRKIR | |||
Verkefni | Umsækjandi | Verkefnastjóri | Upphæð |
Fullvinnsla og afurðaþróun Sjávargróðurs | Íslensk bláskel og sjávargróður ehf | Símon Már Sturluson | 3.000.000 |
Urður Ullarvinnsla | Rauðbarði ehf. | Ingibjörg Þóranna Steinudóttir | 2.000.000 |
Laugardalur í allri sinni dýrð | Dalahyttur ehf. | Guðrún Björg Bragadóttir | 1.500.000 |
Dalahvítlaukur | Svarthamar Vestur ehf. | Þórunn M J H Ólafsdóttir | 1.000.000 |
Skýjabrú | Skývafnir ehf. | Jón Orri Kristjánsson | 1.000.000 |
Gagnadrifnar ákvarðanir um fræðslu og þjálfun starfsfólks | Effect ehf. | Eva Karen Þórðardóttir | 1.000.000 |
Hop on Ho off | Snæfellsnes Adventure ehf. | Einar Sveinn Ólafsson | 750.000 |
Birta iðjuþjálfun | Dagbjört Birgisdóttir | Dagbjört Birgisdóttir | 600.000 |
Greining á tækifærum í ferðaþjónustu á Mýrunum | Mundialis ehf. | Eyrún Eyþórsdóttir | 600.000 |
Slow tourism og hópefli í ferðaþjónustu á Snæfellsnesi | Lóuferðir ehf. | Sigríður Ólöf Sigurðardóttir | 600.000 |
Óskaganga | Óskastundir slf. | Jóhanna Kristín Hjartardóttir | 500.000 |
Blálilju vín | Bjargarsteinn ehf. | Guðbrandur G Garðarsson | 400.000 |
Viðbót við starfandi fyrirtæki | Blossi ehf. | Ingibjörg Sigurðardóttir | 250.000 |
Samtals: | 13.200.000 | ||
MENNINGARSTYRKIR | |||
Verkefni | Umsækjandi | Verkefnastjóri | Upphæð |
IceDocs / Iceland Documentary Film Festival | Docfest ehf. | Ingibjörg Halldórsdóttir | 2.200.000 |
Sátan | Glapræði ehf. | Gísli Sigmundsson | 1.000.000 |
TeneRif – Listahátíð | The Freezer ehf. | Kári Viðarsson | 1.000.000 |
Í kirkjugarði | Muninn kvikmyndagerð ehf. | Heiðar Mar Björnsson | 1.000.000 |
Past in flames – Eldhátíð á Eiríksstöðum | History Up Close ehf. | Bjarnheiður Jóhannsdóttir | 1.000.000 |
Borgarnes – Bara Djók | Landnámssetur Íslands ehf. | Helga Margrét Friðriksdóttir | 1.000.000 |
Sýningarhönnun | Landbúnaðarsafn Íslands ses | Anna Heiða Baldursdóttir | 900.000 |
Reykholtshátíð 2024 | Sigurður Bjarki Gunnarsson | Sigurður Bjarki Gunnarsson | 800.000 |
Umbrotafærð | Skúmaskot Films ehf. | Ríkey Konráðsdóttir | 750.000 |
Á huldu / Clandestine | Búdrýgindi ehf. | Guðni Páll Sæmundsson | 700.000 |
Veiðisögur í Landbúnaðarsafni | Landbúnaðarsafn Íslands ses | Anna Heiða Baldursdóttir | 600.000 |
Skaginn syngur inn jólin 2024 | Eigið fé ehf. | Hlédís H. Sveinsdóttir | 500.000 |
Menningarstrætó | Listfélag Akraness | Lára Jóhanna Magnúsdóttir | 500.000 |
Hringiða | Listfélag Akraness | Erna Hafnes Magnúsdóttir | 500.000 |
Litla Listasmiðjan | Heiðrún Jensdóttir | Heiðrún Jensdóttir | 500.000 |
Þjóðahátið Vesturlands / Festival of Nations – West Iceland | Félag nýrra Íslendinga | Malini Elavazhagan | 500.000 |
Hinseginhátíð Vesturlands 2024 | Hinsegin Vesturland, félagasamtök | Bjargey Anna Guðbrandsdóttir | 500.000 |
Himinbjörg listhús, 3 Veggir listrými – sýningarhald | Bjarni Sigurbjörnsson | Bjarni Sigurbjörnsson | 500.000 |
Gjörningatríó | Kruss ehf. | Þorgrímur E Guðbjartsson | 500.000 |
Listaverk vegna 70 ára afmælis Kvenfélags Ólafsvíkur | Kvenfélag Ólafsvíkur | Steiney Kristín Ólafsdóttir | 500.000 |
Hvalurinn | Olena Sheptytska | Olena Sheptytska | 500.000 |
Kalman – listafélag | Kalman – listafélag | Björg Þórhallsdóttir | 500.000 |
Fyrirlestrar og viðburðir 2024 | Snorrastofa | Bergur Þorgeirsson | 500.000 |
Blúshátíð í Borgarnesi, Brúarblús | Örvar Bessason | Örvar Bessason | 400.000 |
Listviðburðir í Dalíu | D9 ehf. | Leifur Steinn Elísson | 400.000 |
Sumartónleikar Hallgrímskirkju Saurbæ | Sumartónleikar Hallgrímskirkju í Saurbæ | Jósep Gíslason | 400.000 |
Líf og list í Safnahúsi Borgarfjarðar | Borgarbyggð | Þórunn Kjartansdóttir | 400.000 |
Tónleikar í Grundarfjarðarkirkju | Listvinafélag Grundarfjarðarkirkju | Linda María Nielsen | 400.000 |
Menningardagskrá Nýp; Málþing, sýning, kynning á verkstæði | Penna sf. | Sumarliði R Ísleifsson | 400.000 |
Minningarsteinn um Hallgrím og Guðríði | Margrét Bóasdóttir | Margrét Bóasdóttir | 400.000 |
Menningardagskrá | Landnámssetur Íslands ehf. | Kjartan Ragnarsson | 400.000 |
Eyrbyggjasaga Myndrefill á Snæfellsnesi | Eyrbyggjasögufélag | Anna Sigríður Melsteð | 400.000 |
List í safnahúsum | Byggðasafnið í Görðum | Sara Hjördís Blöndal | 400.000 |
Júlíana hátíð sögu og bóka í Stykkishólmi | Júlíana, félagasamtök | Gréta Sig Bjargardóttir | 400.000 |
Bergmál-Echo | Jökulhús ehf. | Elva J Thomsen Hreiðarsdóttir | 400.000 |
Lífið, alheimurinn og allt saman // Life, the universe and | Tinna Rós Þorsteinsdóttir | Sara Hjördís Blöndal | 400.000 |
Jólahátíð Hljómlistarfélags Borgarfjarðar 2024 | Hljómlistarfélag Borgarfjarðar | Þóra Sif Svansdóttir | 350.000 |
List og Lyst á Varmalandi | Hollvinafélag Varmalands | Vilhjálmur Hjörleifsson | 350.000 |
Írskar og Keltneskar perlur | Menningarfélagið Bohéme | Hanna Þóra Guðbrandsdóttir | 300.000 |
Íslensk strandmenning – staða hennar og framtíð | Vitafélagið – Íslensk strandmenning | Sigurbjörg Árnadóttir | 300.000 |
List fyrir alla – Listhandverk í Borgarneskirkju | Katrín Jóhannesdóttir | Katrín Jóhannesdóttir | 300.000 |
Litbrigðafjöld í sauðfé í Lundarreykjadal | Anna Guðrún Torfadóttir | Anna Guðrún Torfadóttir | 300.000 |
Gamla Pakkhúsið í Ólafsvík | Hollvinafélag Pakkhússins Ólafsvík | Jenný Guðmundsdóttir | 300.000 |
Menningardagskrá í Vatnasafni 2024 | Sveitarfélagið Stykkishólmur | Hjördís Pálsdóttir | 300.000 |
RÝMI – X | Creatrix ehf. | Signý Óskarsdóttir | 300.000 |
Er líða fer að jólum 2024 | Alexandra Rut Jónsdóttir | Alexandra Rut Jónsdóttir | 300.000 |
Óður til móður | Sigríður Ásta Olgeirsdóttir | Sigríður Ásta Olgeirsdóttir | 300.000 |
Tónlistarheimsóknir á Vesturlandi | Smiðjuloftið ehf. | Valgerður Jónsdóttir | 250.000 |
„Kellingar skoða skólahald“ | Guðbjörg Sæunn Árnadóttir | Guðbjörg Sæunn Árnadóttir | 250.000 |
Skotthúfan 2024 | Sveitarfélagið Stykkishólmur | Hjördís Pálsdóttir | 250.000 |
Wanted To Tell You | Guðbrandur Örn Úlfarsson | Guðbrandur Örn Úlfarsson | 200.000 |
Òran Mór Celtic Music Concert | Félag nýrra Íslendinga | Pauline McCarthy | 200.000 |
Söngvar að heiman – songs from home | Kristín Einarsdóttir Mantyla | Sigrún Björk Sævarsdóttir | 200.000 |
Orgel- og sópranperlur tónbókmenntanna | Ásta Marý Stefánsdóttir | Ásta Marý Stefánsdóttir | 200.000 |
Hlaðvarp Hlöðuberg | Hein ehf. | Ævar Kjartansson | 200.000 |
Mót 5 kóra á Akranesi þann 2o.apríl 2024 | Félag eldri borgara Akraness og nágrennis | Rögnvaldur Einarsson | 150.000 |
Samtals: | 27.450.000 | ||
STOFN- OG REKSTRARSTYRKIR MENNINGAR | |||
Verkefni | Umsækjandi | Verkefnastjóri | Upphæð |
Sjóminjasafnið á Hellissandi | Sjóminjasafnið í Sjómannagarðinum | Þóra Olsen | 1.000.000 |
Frystiklefinn – Menningarmiðstöð. | The Freezer ehf. | Kári Viðarsson | 1.000.000 |
Eiríksstaðir rekstur 2024 | History Up Close ehf. | Bjarnheiður Jóhannsdóttir | 1.000.000 |
Rekstur Vínlandsseturs 2024 | Vínlandssetur ehf. | Anna Sigríður Grétarsdóttir | 1.000.000 |
Verkstæðið menningarrými | Verkstæðið menningarfélag sf. | Sara Hjördís Blöndal | 1.000.000 |
Vetraropnun sýninga | Landnámssetur Íslands ehf. | Helga Margrét Friðriksdóttir | 750.000 |
Samtals: | 5.750.000 |