September, 2026
- Super event man
mán
þri
mið
fim
fös
lau
sun
-
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
5maí - 31desmaí 513:56des 31Viðburðir á Vesturlandi

Nánari upplýsingar
Vesturland iðar af lífi árið um kring og býður upp á fjölbreytta viðburði fyrir bæði heimafólk og gesti. Á dagskránni eru tónleikar, bæjarhátíðir, menningarviðburðir, sýningar, útivistarviðburðir og
Meira
Nánari upplýsingar
Vesturland iðar af lífi árið um kring og býður upp á fjölbreytta viðburði fyrir bæði heimafólk og gesti. Á dagskránni eru tónleikar, bæjarhátíðir, menningarviðburðir, sýningar, útivistarviðburðir og fjölskylduupplifanir – allt í einstöku umhverfi Vesturlands.
Hvort sem þú vilt njóta tónlistar í fallegu umhverfi, upplifa líflegar bæjarhátíðir, fræðast um sögu og menningu svæðisins eða taka þátt í útivist og ævintýrum, þá er alltaf eitthvað spennandi á döfinni.
Klukkan
Maí 5 (Þriðjudagur) 13:56 - Desember 31 (Fimmtudagur) 13:56
6maí - 30septmaí 614:39sept 30Samfélagssjóður BYKOSamfélagssjóður BYKO
Nánari upplýsingar
Verkefni sem snúa að sjálfbærni eða að umsækjandi/fyrirtæki/félagasamtök starfi með sjálfbærni að leiðarljósi styrkir stöðu umsóknar þar sem umsækjendur eru hvattir til að að vinna eftir stoðum sjálfbærninnar sem eru
Meira
Nánari upplýsingar
Verkefni sem snúa að sjálfbærni eða að umsækjandi/fyrirtæki/félagasamtök starfi með sjálfbærni að leiðarljósi styrkir stöðu umsóknar þar sem umsækjendur eru hvattir til að að vinna eftir stoðum sjálfbærninnar sem eru umhverfismál, félagsleg mál og stjórnarhættir. Verkefni sem snúa að geðheilbrigði falla einnig vel að og styrkir stöðu umsóknar.
Stefnur BYKO má finna hér.
BYKO leggur megináherslu á fimm heimsmarkmið:
– Jafnrétti kynjanna
– Góð atvinna og hagvöxtur
– Nýsköpun og uppbygging
– Ábyrg neysla og framleiðsla
– Samvinna um markmiðin
Samfélagssjóður BYKO hefur það að markmiði að styðja við þau verkefni sem best samræmast áðurnefndum atriðum og gerir þá kröfu að styrkþegar skilgreini hvernig styrknum verði ráðstafað. Sjóðurinn hefur mismunandi áherslur hverju sinni en þau verkefni sem koma til greina í næstu úthlutun skulu vera tengd einhverju af eftirfarandi:
– Geðheilbrigðismálum
– Sjálfbærniverkefnum
Verkefni sem eru ekki styrkt af sjóðnum eru:
– Sértæk útgáfuverkefni
– Einstaklingar, nemendur eða starfsmannafélög til námsferða eða íþróttaferða
– Kosningaherferðir nemenda og/eða stjórnmálaflokka
– Utanlandsferðir listamanna og listhópa
– Almenn bókaútgáfa, gerð almenns námsefnis og útgáfa geisladiska
– Happdrætti, bingó og aðrir slíkir viðburðir
Ofangreindur listi er ekki tæmandi.
Fyrirkomulag afgreiðslu umsókna
Í ár verða styrkir veittir í október.
Umsóknir skulu berast í gegnum rafrænt umsóknarform sem finna má hér fyrir neðan og skal fylgja greinargóð lýsing á viðfangsefni og markmiði verkefnis. Fyrir október úthlutun verður opið fyrir umsóknir frá 15. september – 30. september.
Stjórn sjóðsins getur óskað eftir því að fá frekari kynningu á verkefninu áður en tekin er ákvörðun um styrkúthlutun.
Haft verður samband við þá sem hljóta styrk en ef svar hefur ekki borist innan mánaðar frá síðasta úthlutunardegi má líta svo á að umsókninni hafi verið hafnað.
Klukkan
Maí 6 (Miðvikudagur) 14:39 - September 30 (Miðvikudagur) 12:00
14ágú - 15oktágú 1411:48okt 15Samfélagssjóður EFLUSamfélagssjóður EFLU
Nánari upplýsingar
EFLA veitir styrki til uppbyggjandi og jákvæðra verkefna sem nýtast samfélaginu. Markmiðið er að styðja framtak einstaklinga og hópa sem stuðla að farsælli þróun samfélagsins, lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi.
Nánari upplýsingar
EFLA veitir styrki til uppbyggjandi og jákvæðra verkefna sem nýtast samfélaginu. Markmiðið er að styðja framtak einstaklinga og hópa sem stuðla að farsælli þróun samfélagsins, lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi.
Klukkan
Ágúst 14 (Föstudagur) 11:48 - Október 15 (Fimmtudagur) 11:48
28ágú - 15oktágú 2817:00okt 15Svanni lánatryggingasjóðurSvanni - umsóknarfrestur

Nánari upplýsingar
Viltu efla fyrirtækið þitt ? Umsóknarfrestur um lán er til og með 15.október 2026. Skoðaðu möguleikana á lánafyrirgreiðslu hjá Svanna-lánatryggingasjóði kvenna. Svanni veitir lánatryggingar
Meira
Nánari upplýsingar
Viltu efla fyrirtækið þitt ?
Umsóknarfrestur um lán er til og með 15.október 2026.
Skoðaðu möguleikana á lánafyrirgreiðslu hjá Svanna-lánatryggingasjóði kvenna.
Svanni veitir lánatryggingar til kvenna með góðar viðskiptahugmyndir og er í samstarfi við Landsbankann um lánafyrirgreiðslu. Sjóðurinn veitir helming ábyrgðar á móti banka.
Klukkan
Ágúst 28 (Föstudagur) 17:00 - Október 15 (Fimmtudagur) 17:00

Nánari upplýsingar
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um verkefnastyrki NORA – Norræna Atlantssamstarfsins. Um er að ræða síðari úthlutun ársins 2026. Umsóknarfrestur er til miðnættis 5. október 2026. NORA styrkir samstarfsverkefni á Norður-Atlantssvæðinu þar
Meira
Nánari upplýsingar
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um verkefnastyrki NORA – Norræna Atlantssamstarfsins. Um er að ræða síðari úthlutun ársins 2026.
Umsóknarfrestur er til miðnættis 5. október 2026.
NORA styrkir samstarfsverkefni á Norður-Atlantssvæðinu þar sem þátttakendur koma frá að minnsta kosti tveimur af fjórum aðildarlöndum samstarfsins: Íslandi, Grænlandi, Færeyjum og strandhéruðum Noregs. Umsóknir ættu að taka mið af stefnu NORA fyrir árin 2025–2028. Áherslusvið hennar eru:
- Aðfanga- og afhendingaröryggi: Verkefni tengd afhendingaröryggi orku, matvælaframleiðslu, vatni og hreinlæti, samgöngum og heilsu.
- Gervigreind: Tæknilausnir og verkefni sem bæta framleiðni og öryggi, viðhalda eða skapa atvinnu- og búsetutækifæri á strjálbýlum svæðum.
- Sjálfbær ferðaþjónusta: Áhersla á menningararf og upplifanir.
- Aðlaðandi samélag: Verkefni sem bæta hag barna, ungmenna og fjölskyldna.
- Hreyfanleiki og græn skref: Aðgerðir sem efla svæðisbundin atvinnutækifæri, óstaðbundin störf og þekkinarmiðlun milli svæða.
- Sjávarútvegur og matvælaframleiðsla: Lausnir sem styrkja hagkerfi strandsamfélaga, t.d. verkefni sem endurnýta eða fullnýta aukaafurðir.
- Silfurhagkerfið: Verkefni sem hlúa að virði og vellíðan eldra fólks og efla samstarf milli kynslóða.
Sérstök áhersla er lögð á verkefni sem stuðla að nýsköpun, atvinnusköpun, sjálfbærni og sterkari samfélögum á Norður-Atlantssvæðinu.
Verkefnastyrkir NORA eru einkum ætlaðir atvinnu- og viðskiptatengdum verkefnum á frumstigi. Verkefni sem eingöngu snúa að menningu eða rannsóknum falla ekki undir styrkjaáætlunina.
Helstu skilyrði
Til að verkefni komi til greina þurfa að minnsta kosti tveir samstarfsaðilar frá tveimur aðildarlöndum eða -svæðum NORA að standa að umsókn.
- Gert er ráð fyrir að minnsta kosti 50% mótframlagi.
- Styrkur frá NORA getur numið allt að 500.000 dönskum krónum á ári og að hámarki 1.500.000 dönskum krónum á þriggja ára tímabili.
- NORA gerir kröfu um að hafa heimild til að birta og kynna niðurstöður verkefnis á sínum vettvangi.
Ef umsókn uppfyllir ekki þessi skilyrði er henni vísað frá.
Við mat umsókna er meðal annars horft til þess hversu vel verkefnið fellur að áherslum NORA, nýsköpunargildis þess, framkvæmdarhæfni, samstarfs þátttakenda, norræns notagildis og möguleika á áframhaldandi nýtingu niðurstaðna.
Til að eiga möguleika á styrk þurfa verkefni að tengjast yfirmarkmiðum samstarfsins, að efla Norðuratlantssvæðið sem svæði sem einkennist af styrk og þrótti og af sterkri, sjálfbærri efnahagsþróun. Allir geta sótt um styrki; fyrirtæki, opinberar stofnanir og aðrir.
Hér er að finna:
Rafrænt umsóknarform um verkefnastyrki NORA
Leiðbeiningar um styrkumsóknir
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu NORA, https://nora.fo/
ATH! Umsóknarfrestur er til miðnættis 5. október 2026.
Tengiliður NORA á Íslandi er Hanna Dóra Björnsdóttir, hannadora@byggdastofnun.is
Klukkan
September 2 (Miðvikudagur) 13:31 - Október 5 (Mánudagur) 23:59

Nánari upplýsingar
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki til uppbyggingar vinnustaðaklasa á landsbyggðinni. Alls verður úthlutað allt að 50 milljónum króna og er umsóknarfrestur til kl. 12.00 mánudaginn 28. september 2026. Byggðastofnun
Meira
Nánari upplýsingar
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki til uppbyggingar vinnustaðaklasa á landsbyggðinni. Alls verður úthlutað allt að 50 milljónum króna og er umsóknarfrestur til kl. 12.00 mánudaginn 28. september 2026.
Byggðastofnun annast umsýslu styrkjanna fyrir hönd innviðaráðherra, sem veitir þá á grundvelli byggðaáætlunar fyrir árin 2022–2036. Styrkirnir falla undir aðgerð B.7 um óstaðbundin störf.
Markmið aðgerðarinnar er að efla búsetufrelsi með því að fjölga atvinnutækifærum og auka fjölbreytni starfa á landsbyggðinni. Með stuðningi við vinnustaðaklasa er jafnframt stefnt að því að skapa betri aðstöðu fyrir óstaðbundin störf og styrkja atvinnulíf utan höfuðborgarsvæðisins.
Þetta er í annað sinn sem auglýst er eftir umsóknum um styrki til vinnustaðaklasa. Í mars síðastliðnum voru veittir styrkir til 26 vinnustaðaklasa, samtals að fjárhæð tæplega 50 milljónir króna.
Hverjir geta sótt um?
Styrkhæfir eru aðilar sem reka vinnustaðaklasa utan höfuðborgarsvæðisins. Við úthlutun verður sérstaklega horft til minni byggðarlaga þar sem atvinnulíf er einhæft, svæða sem orðið hafa fyrir verulegum atvinnulegum áföllum og svæða þar sem vinnusóknarsvæði eru fámenn.
Styrki er meðal annars hægt að nýta til:
• að mæta launakostnaði við að koma nýrri starfsemi á fót,
• að fjölga vinnurýmum gegn langtímaskuldbindingu um nýtingu þeirra,
• að standa straum af sameiginlegum rekstrarkostnaði vegna starfseminnar.
Hvað er vinnustaðaklasi?
Vinnustaðaklasi er skipulagt og samnýtt vinnurými þar sem boðið er upp á fjölbreytta vinnuaðstöðu fyrir fleiri en einn vinnustað eða starfsstöðvar ólíkra vinnustaða.
Nánar er fjallað um skilyrði, valnefnd og mat umsókna í reglum um úthlutun innviðaráðherra á framlögum samkvæmt stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022–2036. Einnig má finna nánari upplýsingar um verkefnið óstaðbundin störf í aðgerðaáætlun byggðaáætlunar, aðgerð B.7.
Nánari upplýsingar
• Auglýsing um úthlutun styrkjanna
• Umsóknargátt Byggðastofnunar
• Reglur um úthlutun innviðaráðherra á framlögum samkvæmt stefnumótandi byggðaáætlun 2022–2036
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Árnason, sérfræðingur á þróunarsviði Byggðastofnunar, í netfanginu sigurdur@byggdastofnun.is.
Klukkan
3 (Fimmtudagur) 09:53 - 28 (Mánudagur) 12:00

Nánari upplýsingar
Byggðastofnun auglýsir styrki til meistaranema sem vinna að rannsóknartengdum lokaverkefnum á sviði byggðaþróunar. Kostur er ef verkefnin hafa skírskotun til byggðaáætlunar. Til úthlutunar er allt að 1.200.000 kr. og stefnt
Meira
Nánari upplýsingar
Byggðastofnun auglýsir styrki til meistaranema sem vinna að rannsóknartengdum lokaverkefnum á sviði byggðaþróunar. Kostur er ef verkefnin hafa skírskotun til byggðaáætlunar. Til úthlutunar er allt að 1.200.000 kr. og stefnt er að því að veita allt að fjóra styrki. Í umsókn skal koma fram greinargóð lýsing á verkefninu, markmiðum þess og hvernig það styður við byggðaþróun. Umsækjendur þurfa að stunda meistaranám við viðurkenndan háskóla.
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á heimasíðu Byggðastofnunar.
Umsóknarfrestur er til miðnættis 9. nóvember 2026.
Við mat á umsóknum er litið til eftirfarandi þátta:
– Tengsl verkefnis við markmið byggðaáætlunar
– Nýnæmi verkefnis
– Möguleikar á hagnýtingu
– Gæði umsóknar (skýr markmið, vönduð rannsóknaráætlun og hnitmiðaður texti)
Byggðastofnun hefur frá árinu 2015 veitt styrki til meistaranema sem vinna að lokaverkefnum á sviði byggðaþróunar. Á heimasíðu stofnunarinnar má sjá yfirlit verkefna sem hafa verið styrkt.
Nánari upplýsingar veitir Hanna Dóra Björnsdóttir.
Klukkan
September 15 (Þriðjudagur) 10:36 - Nóvember 9 (Mánudagur) 23:59