Maí, 2026

6maí - 30septmaí 614:39sept 30Samfélagssjóður BYKOSamfélagssjóður BYKO

Meira

Nánari upplýsingar

Verkefni sem snúa að sjálfbærni eða að umsækjandi/fyrirtæki/félagasamtök starfi með sjálfbærni að leiðarljósi styrkir stöðu umsóknar þar sem umsækjendur eru hvattir til að að vinna eftir stoðum sjálfbærninnar sem eru umhverfismál, félagsleg mál og stjórnarhættir. Verkefni sem snúa að geðheilbrigði falla einnig vel að og styrkir stöðu umsóknar.

Stefnur BYKO má finna hér.

BYKO leggur megináherslu á fimm heimsmarkmið:

– Jafnrétti kynjanna
– Góð atvinna og hagvöxtur
– Nýsköpun og uppbygging
– Ábyrg neysla og framleiðsla
– Samvinna um markmiðin

Samfélagssjóður BYKO hefur það að markmiði að styðja við þau verkefni sem best samræmast áðurnefndum atriðum og gerir þá kröfu að styrkþegar skilgreini hvernig styrknum verði ráðstafað. Sjóðurinn hefur mismunandi áherslur hverju sinni en þau verkefni sem koma til greina í næstu úthlutun skulu vera tengd einhverju af eftirfarandi:

– Geðheilbrigðismálum
– Sjálfbærniverkefnum

​Verkefni sem eru ekki styrkt af sjóðnum eru:

– Sértæk útgáfuverkefni
– Einstaklingar, nemendur eða starfsmannafélög til námsferða eða íþróttaferða
– Kosningaherferðir nemenda og/eða stjórnmálaflokka
– Utanlandsferðir listamanna og listhópa
– Almenn bókaútgáfa, gerð almenns námsefnis og útgáfa geisladiska
– Happdrætti, bingó og aðrir slíkir viðburðir

Ofangreindur listi er ekki tæmandi.

Fyrirkomulag afgreiðslu umsókna

Í ár verða styrkir veittir í október.

Umsóknir skulu berast í gegnum rafrænt umsóknarform sem finna má hér fyrir neðan og skal fylgja greinargóð lýsing á viðfangsefni og markmiði verkefnis. Fyrir október úthlutun verður opið fyrir umsóknir frá 15. september – 30. september.

Stjórn sjóðsins getur óskað eftir því að fá frekari kynningu á verkefninu áður en tekin er ákvörðun um styrkúthlutun.

Haft verður samband við þá sem hljóta styrk en ef svar hefur ekki borist innan mánaðar frá síðasta úthlutunardegi má líta svo á að umsókninni hafi verið hafnað.

Klukkan

Maí 6 (Miðvikudagur) 14:39 - September 30 (Miðvikudagur) 12:00

Samtök Sveitarfélaga á vesturlandi Samtök Sveitarfélaga á vesturlandi
433 2310
X