Styrkveitingar á úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs Vesturlands

SSVFréttir

Síðast liðinn föstudag var haldin úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs Vesturlands að Klifi í Ólafsvík og var sérstaklega ánægjuleg góð mæting styrkhafa þrátt fyrir að veðráttan hafi ekki verið með besta móti. Sjóðurinn auglýsti eftir umsóknum í desember s.l. og bárust 130 umsóknir.

Páll S. Brynjarsson, framkvæmdastjóri SSV setti athöfnina. Elísabet Haraldsdóttir, menningarfulltrúi Vesturlands ásamt Svölu Svavarsdóttur, verkefnastjóra SSV og Helgu Guðjónsdóttur, formanni fagráðs sjóðsins byrjuðu á því að veita styrki til þeirra 12 verkefna sem hlutu styrki í flokki stofn- og rekstrarstyrkja menningarmála alls 7,4 mkr. en 20 umsóknir bárust í þann flokk. Þar á eftir kom að því að afhenda styrki í flokki menningarverkefna en í þann flokk bárust 76 umsóknir. Það voru 54 verkefni sem  hlutu styrk að þessu sinni í þeim flokki að upphæð 25,7 mkr. Þá tók  Ólafur Sveinsson forstöðumaður atvinnuráðgjafar SSV við og veitti styrki í flokki atvinnu- og nýsköpunarverkefna ásamt Ólöfu Guðmundsdóttur, atvinnuráðgjafa SSV og Helgu Guðjónsdóttur, formanni fagráðs. Í þann flokk bárust 34 umsóknir og hlutu 16 verkefni styrki að upphæð 13,8 mkr.

Í lokin var boðið upp á léttar veitingar áður en gestir hættu sér aftur út í veðurbarninginn.

Verkefnin sem hlutu styrki voru:

Atvinnu- og nýsköpunarstyrkir

Lífræn lindarböð   Þórarinn Egill Sveinsson   2.075.000
IceSilk   Signý Gunnarsdóttir   1.750.000
Turkey Tail Þróunarverkefni    Helix slf.    1.700.000
Þróun á veiðum og vinnslu á grjótkrabba    Útgerðarfélagið Lokinhamrar ehf.    1.600.000
Handverk í heimabyggð   Jóhann Már Þórisson   1.300.000
Þróun nýrrar skartgripalínu   Dýrfinna Torfadóttir   900.000
Aska – þróun duftkerja úr íslenskri jörð   Nónklettur ehf.   600.000
Kaja matvara   Karen Emilía Jónsdóttir   600.000
Fræðslumiðstöð íslenska hestsins   Lárus Ástmar Hannesson   600.000
Kjötvinnsla/eldhús   Jóhanna Sjöfn Guðmundsdóttir   500.000
Beint frá býli, verslun og morgunmatur   Dalakot ehf.   400.000
Kynning á starfsemi Smiðjuloftsins   Þórður Sævarsson   400.000
Hráfóður fyrir hunda   Sunna Birna Helgadóttir   400.000
Shark & Lava á Snæfellsnesi   Rútuferðir ehf.   400.000
Leirbakaríið ehf.   Kolbrún Sigurðardóttir   300.000
Hákarlanammi-Rotten Shark Candy   Geir Konráð Theódórsson   250.000

Menningarstyrkir

Nr.3 Umhverfing /Snæfellsnes   Svæðisgarður Snæfellsness ses.   2.500.000
Ókunnugur – Leiksýning   The Freezer ehf.   1.500.000
Hellissandur Street Art Festival   The Freezer ehf.   1.000.000
Skagarokk ’92   Muninn kvikmyndagerð ehf.   1.000.000
Northern Wave film festival   Dögg Mósesdóttir   1.000.000
Plan-B Art Festival   Sigursteinn Sigurðsson   1.000.000
Afsakið Hlé!   Muninn kvikmyndagerð ehf.   1.000.000
Axlar Björn Exhibition   Guðni Þorberg Svavarsson   800.000
Reykholtshátíð 2019   Sigurgeir Agnarsson   750.000
Miðlun menningararfs   Byggðasafnið í Görðum   700.000
Landnámsmenn í vestri   Sjóminjasafnið í Sjómannagarðinum   650.000
Menningarviðburðir Kalmans   Kalman – listafélag   600.000
Menningardagskrá 2019   Safnahús Borgarfjarðar   500.000
Kórastarf Freyjukórsins   Freyjukórinn   500.000
Fjölmenningarhátíð 2019   Snæfellsbær   500.000
Endurhleðsla fjárréttarinnar í Ólafsvík   Átthagastofa Snæfellsbæjar   500.000
Jöklarar í brons   Slysavarnardeildin Helga Bárðard.   500.000
Tónlist á Vesturlandi   Karlakórinn söngbræður   500.000
Þjóðahátið Vesturlands   Félag nýrra Íslendinga   500.000
Snæfellsnes spil   Adela Marcela Turloiu   500.000
Fyrirlestrar og viðburðir 2019   Snorrastofa Reykholti   500.000
Tónleikaröð í Grundarfjarðarkirkju   Listvinafélag Grundarfjarðarkirkju   400.000
Tónlistardagskrá í Stykkishólmskirkju   Listvinafélag Stykkishólmskirkju   400.000
Það og Hvað heimsækja leikskólana   Sigríður Ásta Olgeirsdóttir   300.000
Börnin fara að hlakka til   Stykkishólmsbær   300.000
Júlíana Jónsdóttir – sýning   Stykkishólmsbær   300.000
Fullkomið Brúðkaup   Leikdeild UMF Skallagríms   300.000
Jólatónleikar Hljómlistarfélags Borgarfj   Hljómlistarfélag Borgarfjarðar   300.000
Flamenco tónleikar og námskeið   Reynir Hauksson   300.000
Stuttverkakvöld   Leikfélagið Skagaleikflokkurinn   300.000
Tónleikar stúlknabandsins MÆK   Gréta Sigurðardóttir   300.000
Þjóðlegir þræðir – Hlaðvarp um handverk   Anna Dröfn Sigurjónsdóttir   300.000
Frostbiter: Icelandic Horror Film Fest   Lovísa Lára Halldórsdóttir   300.000
Féhirðir   Aðalgeir Gestur Vignisson   300.000
Útiljósmyndasýningar í Grundarfirði   Grundarfjarðarbær   300.000
100 ára listaverk Jóh.Helgasonar   Menningarsjóðurinn Undir jökli   300.000
1918 í Heimskringlu   Ingibjörg Kristleifsdóttir   300.000
Gullmolar í héraði   Eiríkur Jónsson   300.000
Kórstarf   Félag eldri borgara Akraness og nágrennsi   250.000
Karlakórinn Svanir   Karlakórinn Svanir   250.000
Kór eldri borgara   Gleðigjafi, kór eldri borgara   250.000
Vortónleikar Karlakórsins Heiðbjartar   Karlakórinn Heiðbjört   250.000
Fræðsla um eldsmíði – námskeið o.fl.   Guðmundur Sigurðsson   250.000
Tónleikahald Kirkjukórs Ólafsvíkur   Kirkjukór Ólafsvíkur   250.000
Júlíana – hátíð sögu og bóka   Júlíana, félagasamtök   250.000
Tónlist á Vesturlandi og víðar   Karlakórinn Kári  250.000
Stálpastaðir – ljósmyndasýning   Karólína Hulda Guðmundsdóttir   200.000
Litir Borgarfjarðar   Josefina Margareta Morell   200.000
Rómur um holt og nes   Inga Björk Ingadóttir   200.000
Leikið með menningararfinn   Byggðasafnið í Görðum   200.000
Jólagleði kóranna   Jóna Björg Kristinsdóttir   150.000
Kellingarnar hylla heiðursborgara   Leikfélagið Skagaleikflokkurinn   150.000
Ljósmyndasýning á Sjómannadag   Signý Gunnarsdóttir   150.000
Pöbba-rödd   Lovísa Lára Halldórsdóttir   100.000

Stofn- og rekstrarstyrkir

Iceland Documentary Film Festival   Docfest ehf.   1.500.000
Sjóminjasafnið á Hellissandi   Sjóminjasafnið í Sjómannagarðinum   1.200.000
Rekstur Snorrastofu í Reykholti   Snorrastofa Reykholti   1.000.000
Rekstrarstyrkur Landbúnaðarsafns Íslands   Landbúnaðarsafn Íslands ses   700.000
Eiríksstaðir rekstur  Dalabyggð   500.000
Skráning muna og ljósmynda   Snæfellsbær   500.000
Sumarrekstur í Ólafsdal 2019   Ólafsdalsfélagið   500.000
Ljósmyndasafn Bærings – varðveisluátak   Grundarfjarðarbær   400.000
Kvikmyndasafn Bærings – varðveisluátak   Grundarfjarðarbær   350.000
Sumarsýning Nr. 3 Umhverfing   Listvinafélag Stykkishólmskirkju   263.000
Vatnasafn – Viðburðir   Stykkishólmsbær   250.000
Eldfjallasafn – Viðburðir   Stykkishólmsbær   250.000

Mynd: Skessuhorn