Kristján Þór opnar fyrir umsóknir í Matvælasjóð

SSVFréttir

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, opnaði í dag formlega fyrir umsóknir í nýjan Matvælasjóð. Frumvarp ráðherra um stofnun sjóðsins var samþykkt á Alþingi í apríl sl. og var alls 500 milljónum króna varið til stofnunar sjóðsins og verður þeim úthlutað á þessu ári. Umsóknarfrestur er 21. september.

Nánar á vef stjórnarráðsins