Sproti er fyrir ung nýsköpunarfyrirtæki og frumkvöðla og er ætlaður til að styðja við verkefni á byrjunarstigi.
Styrkur getur numið allt að 20 milljónum króna samanlagt á tveimur árum, þó ekki meira en 10 milljónum króna á hvoru ári. Ekki er gerð krafa um mótframlag umsækjenda af heildarkostnaði við verkefnið.
Hámarks lengd verkefnis er 2 ár
Skil á umsókn: Umsóknarfrestur er til kl. 15:00 á lokadegi umsóknarfrests. Umsókn skal skila rafrænt í umsóknarkerfi Rannís.
https://www.rannis.is/sjodir/rannsoknir/taeknithrounarsjodur/fyrirtaekjastyrkur-sproti