Á hverju ári veitir Krónan vel völdum verkefnum úthlutun úr Samfélagsstyrk Krónunnar. Við val á styrkþegum er horft til lýðheilsustefnu Krónunnar en verkefnin eiga það sameiginlegt að ýta undir umhverfismál eða hvetja til lýðheilsu í formi hollustu og hreyfingu með áherslu á yngri kynslóðina. Öll hafa þau jákvæð áhrif á uppbyggingu í nærsamfélagi Krónunnar en langflestir styrkþegar eru staðsettir á landsbyggðinni.