Október, 2026
28okt - 30nóvokt 2809:57nóv 30Samfélagssjóður SjóváSamfélagssjóður Sjóvá

Nánari upplýsingar
Samfélagsstyrkir Úthlutunarreglur Úthlutað er að hámarki 12 milljónum króna árlega,
Meira
Nánari upplýsingar
Samfélagsstyrkir
Úthlutunarreglur
Úthlutað er að hámarki 12 milljónum króna árlega, sem fer fram í þremur úthlutunum. Einstakir styrkir eru að jafnaði á bilinu 100.000 til 500.000 krónur, og fara aldrei yfir eina milljón króna.
Styrkveitingar miða að því að styðja verkefni sem hafa breiða samfélagslega skírskotun, með sérstakri áherslu á verkefni sem hafa jákvæð áhrif í nærsamfélagi Sjóvár.
Styrkir eru veittir einstaklingum, hópum, sjálfseignarstofnunum og frjálsum félagasamtökum sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni. Stuðningurinn er veittur til afmarkaðra verkefna og viðburða, en nær ekki til rekstrarkostnaðar.
Hver eru verkefnin sem henta fyrir styrk?
Áhersla er lögð á verkefni sem tengjast:
- forvörnum og æskulýðsstarfi
- heilsu og hreyfingu
- listum, menningu og menntun
- sjálfbærni og samfélagsábyrgð
Hvað fellur almennt utan styrkramma?
Ekki er veittur stuðningur í tengslum við:
- námsstyrki
- ferðir erlendis
- almenna útgáfu, s.s. bóka, hljómplatna eða kvikmynda
- rannsóknir- og vísindaverkefni
Klukkan
Október 28 (Miðvikudagur) 09:57 - Nóvember 30 (Mánudagur) 14:00