Júní, 2026

Nánari upplýsingar
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í viðskiptahraðalinn Startup Landið sem haldinn verður 24. september til 5. nóvember 2026. Hraðallinn er ætlaður einstaklingum og teymum með nýsköpunarhugmyndir á landsbyggðinni sem vilja
Meira
Nánari upplýsingar
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í viðskiptahraðalinn Startup Landið sem haldinn verður 24. september til 5. nóvember 2026.
Hraðallinn er ætlaður einstaklingum og teymum með nýsköpunarhugmyndir á landsbyggðinni sem vilja þróa þær áfram með markvissri leiðsögn, fræðslu og stuðningi frá reynslumiklum leiðbeinendum og sérfræðingum úr atvinnulífinu.
Í Startup Landinu fá þátttakendur tækifæri til að vinna markvisst að sínum verkefnum, móta viðskiptahugmyndir, þróa viðskiptamódel og efla tengslanet sitt. Áhersla er lögð á hagnýta vinnu, skapandi hugsun og að styðja frumkvöðla við að koma hugmyndum sínum á næsta stig.
Hraðallinn er samstarfsverkefni landshlutasamtaka og atvinnuþróunarfélaga um land allt og var haldinn í fyrsta sinn árið 2025. Markmiðið er að styðja við nýsköpun á landsbyggðinni og auka sýnileika hennar
Umsóknarfrestur er til 1. september og nánari upplýsingar má finna á startuplandid.is.
Klukkan
Júní 3 (Miðvikudagur) 15:04 - September 1 (Þriðjudagur) 12:00