Hlutverk æskulýðssjóðsins er að styrkja verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka. Einkum er horft til verkefna sem eru unnin fyrir börn og ungmenni og/eða með virkri þátttöku þeirra, þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða, nýjungar og þróunarverkefni og samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka.
Allir sem eru í forsvari fyrir æskulýðsfélög og æskulýðssamtök. Ekki er gert ráð fyrir að hefðbundin íþróttafélög sæki um verkefni sem snúa að íþróttastarfsemi í þennan sjóð.
Umsóknarfrestur til 17 febrúar kl. 15
Nánari upplýsingar hér: https://www.rannis.is/sjodir/aesku-ithrotta/aeskulydssjodur/