28 – Sorpurðun Vesturlands

admin

28 – Sorpurðun Vesturlands

Stjórnarfundur í Sorpurðun Vesturlands hf.
föstudaginn 25. febrúar 2005.

Fundur haldinn í stjórn Sorpurðunar Vesturlands hf. föstudaginn 25. febrúar 2005 kl. 14:30 í Mótel Venus, Hafnarskógi.  Mættir voru: Guðbrandur Brynjúlfsson, Bergur Þorgeirsson, Gunnólfur Lárusson, Sigríður Gróa Kristjánsdóttir,  Sæmundur Víglundsson, Kristinn Jónasson og Magnús Ingi Bæringsson.  Auk þess sat fundinn Hrefna B. Jónsdóttir, framkvæmdastjóri. 

 

Dagskrá fundarins er eftirfarandi.
1. Kosning formanns
2. Önnur mál.

 

Kosning formanns.

Sigríður Gróa Kristjánsdóttir, aldursformaður setti fundinn og tilnefndi Guðbrand Brynjúlfsson sem formann stjórnar og Kristinn Jónasson sem varaformann.  Samþykkt samhljóða.

 

Önnur mál.
Lagt fram erindi frá SORPU varðandi þátttöku með SORPU, Sunnlendingum og Reyknesingum um yfirlitskönnun á mögulegum urðunarstað eða stöðum fyrir suðvesturland.

Formaður fór yfir erindi SORPU.  Stjórn Sorpurðunar sér ekki ástæðu til þess að vera með í umræddri vinnu varðandi könnun fyrir urðunarstað en vill skoða það að vera með í í yfirlitskönnun og/eða rannsóknum varðandi aðra farvegi.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:00.

Hrefna B. Jónsdóttir, fundarritari.