11 – Heilbrigðisnefnd Vesturlands – aðalfundir

admin

11 – Heilbrigðisnefnd Vesturlands – aðalfundir

Heilbrigðiseftirlit Vesturlands

Innrimel 3, 301 Akranes

kt. 550399-2299 

FUNDARGERÐ

 AÐALFUNDAR HEILBRIGÐISNEFNDAR VESTURLANDS

Föstudaginn 28. mars 2014 kl: 10:20 var aðalfundur  Heilbrigðisnefndar Vesturlands haldinn  á Hótel Borgarnesi.

 

Mætt voru:

Fulltrúar aðildarsveitarfélaga:

Halla Steinólfsdóttir, Eyþór Gíslason, Sveinn Pálsson, Dalabyggð.

Laufey Jóhannsdóttir, Hvalfjarðarsveit

Kristinn Jónasson, Snæfellsbæ

Gyða Steinsdóttir, Stykkishólmi

Davíð Pétursson, Skorradalshreppi

Regína Ástvaldsdóttir, Akranesi

Björn Steinar Pálmason, Grundarfirði

Páll Brynjarsson, Borgarbyggð

Gunnar Sigurðsson, formaður SSV

 

Stjórnarmenn:

Ólafur Adolfsson, Akranesi

 

Starfsmenn HeV: Helgi Helgason framkvæmdastjóri HeV og Ása Hólmarsdóttir heilbrigðisfulltrúi.

 

Ólafur Adolfsson formaður Heilbrigðisnefndar setti fundinn og bauð fundargesti velkomna.  Páll Brynjarsson var  samþykktur sem fundarstjóri og Ása Hólmarsdóttir ritaði fundargerð.

  

Dagskrá:

  1. Skýrsla stjórnar Heilbrigðisnefndar Vesturlands 2013.

Ólafur Adolfsson, formaður fór yfir skýrslu stjórnar fyrir árið 2013.

Skýrslan verður send til sveitarstjórna.

 

  1. Skýrsla Heilbrigðiseftirlits Vesturlands 2013.

Framkvæmdastjóri fór yfir helstu atriði í starfi Heilbrigðiseftirlits á síðasta ári og önnur mál sem brenna á eftirlitinu í daglegu starfi.

Skýrslan framlögð og verður send til sveitarstjórna.

 

  1. Ársreikningur Heilbrigðiseftirlits Vesturlands 2013.

Framkvæmdastjóri kynnti helstu lykiltölur í ársreikningi 2013. Ársreikningurinn hefur ekki verið lagður fyrir heilbrigðisnefnd þar sem hann barst frá endurskoðanda síðdegis í gær. Ársreikningur mun verða sendur til sveitarstjórna þegar afgreiðslu hans er lokið hjá heilbrigðisnefnd og  verður síðan til umfjöllunar og afgreiðslu á  framhaldsaðalfundi HeV næsta haust.

 

  1. Umræður um skýrslu stjórnar, skýrslu Heilbrigðiseftirlits og ársreikning.

Regína Ástvaldsdóttir þakkaði fyrir skýrsluna og kynningu framkvæmdastjóra og formanns á starfi heilbrigðiseftirlits og kom með fyrirspurn um lyktarmál fyrirtækja og þróun mælikvarða á lykt.  Framkvæmdastjóri svaraði fyrirspurn.

 

  1. Önnur mál.

Fundarstjóri minnti á bókun frá aðalfundi 2013 þar sem samþykkt var að  umboð starfandi heilbrigðisnefndar yrði framlengt  fram yfir sveitarstjórnarkosningar 2014 og myndaðir hafa verið meirihlutar í sveitarfélögum á Vesturlandi.

 

Samþykkt að fresta fundi fram til 19. september n.k þegar SSV mun halda framhaldsaðalfund.

 

Fundi slitið kl:   11:25