6 – Heilbrigðisnefnd Vesturlands – aðalfundir
Heilbrigðiseftirlit Vesturlands
Innrimel 3, 301 Akranes
kt. 550399-2299
FUNDARGERÐ
6. AÐALFUNDAR HEILBRIGÐISNEFNDAR VESTURLANDS
Miðvikudaginn 13. maí 2009 kl: 13:45 var aðalfundur Heilbrigðisnefndar Vesturlands haldinn að Hótel Búðum á Snæfellsnesi.
Mætt voru:
Stjórnarmenn:
Finnbogi Rögnvaldsson
Sigrún H. Guðmundsdóttir
Ragnhildur Sigurðardóttir
Gísli S. Einarsson
Fulltrúar aðildarsveitarfélaga með umboð:
Ása Helgadóttir Hvalfjarðarsveit
Jón Lúðvíkssson Snæfellsbæ
Starfsmenn: Helgi Helgason framkvæmdastjóri HeV og Ása Hólmarsdóttir heilbrigðisfulltrúi, sem ritaði fundargerð.
Dagskrá:
Finnbogi Rögnvaldsson formaður nefndar setti fundinn og bauð fundargesti velkomna.
- Skýrsla formanns Heilbrigðisnefndar Vesturlands 2008.
Formaður fór yfir skýrslu nefndarinnar fyrir árið 2008.
Skýrslan framlögð á fundinum.
- Skýrsla Heilbrigðiseftirlits Vesturlands 2008
Framkvæmdastjóri fór yfir helstu atriði í starfi Heilbrigðiseftirlits á síðasta ári.
Skýrslan framlögð á fundinum.
- Ársreikningar Heilbrigðiseftirlits Vesturlands 2008
Framkvæmdastjóri fór lykiltölur í ársreikningi 2008 í rekstri eftirlitsins.
Ársreikningar framlagðir.
Umræður um skýrslu formanns og skýrslu heilbrigðiseftirlits fóru fram samhliða umræðum um ársreikning.
Formaður benti á í sambandi við rekstur eftirlitsins að sveitarfélögin ættu að sjá um reksturinn í stað þess að HeV væri að taka skuldabréf til að auka handbært fé. Einnig kom fram í máli formanns að miðað við stöðu mála í efnahagslífi almennt í dag að betra væri að nefndin ætti eigin bíla í stað þess að hafa þá á rekstarleigu.
Nokkrar umræður fóru fram almennt um ársskýrslu og ársreikning, m.a um starfsmannamál, innheimtukostnað vegna starfsleyfa, hugmynd um heimsóknir heilbrigðisnefndar í fyrirtæki á Vesturlandi og fleira.
Engar athugasemdir komu fram við ársreikning.
Reikningar samþykktir.
- Fundarslit.
Formaður Heilbrigðisnefndar Vesturlands þakkaði fundarmönnum fundarsetu og sleit fundi.
Fundi slitið kl: 14:50