93 – Heilbrigðisnefnd Vesturlands
Heilbrigðiseftirlit Vesturlands
Innrimel 3, 301 Akranes
kt. 550399-2299
FUNDARGERÐ
93. FUNDAR HEILBRIGÐISNEFNDAR VESTURLANDS
Mánudaginn 18. október kl: 16 kom Heilbrigðisnefnd Vesturlands saman til fundar í stjórnsýsluhúsi Hvalfjarðarsveitar að Innrimel 3 í Melahverfi.
Mætt voru:
Rún Halldórsdóttir
Eyþór Garðarsson
Jón Pálmi Pálsson
Dagbjartur I. Arilíusson
Sigrún H. Guðmundsdóttir
Jón Rafn Högnason fulltrúi atvinnurekenda boðaði forföll og ekki kom varamaður í hans stað. Ragnhildur Sigurðardóttir fulltrúi náttuverndarnefnda komst ekki á fundinn.
Helgi Helgason framkvæmdastjóri HeV og Ása Hólmarsdóttir heilbrigðisfulltrúi, sem ritaði fundargerð.
Formaður setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna og var síðan gengið til dagskrár.
Dagskrá:
1. Fjárhagsáætlun HeV 2011
Lögð fram drög að fjárhagsáætlun 2011 sem gera ráð fyrir um 10 % hækkun á eftirlitsgjöldum. Umræður um drögin.
Tillagan samþykkt. Eftirlitsgjöld verða 9275 kr. Rekstartekjur upp á 22 milljónir. Rekstarafgangur eftir niðurfærslu 28.000.
Framkvæmdastjóra falið að senda sveitarstjórnum drögin til umfjöllunar.
2. Starfsleyfi
Starfsleyfi afgreidd af HeV frá síðasta fundi:
Stálsmiðjan ehf. – vélaverkstæði- Grundartangi.- Nýtt leyfi.
Bakkaflöt ehf. – varanleg förðun/tattó. – Stillholti 14, Akranesi.- Nýtt leyfi.
S.Æ. Þurrkun og pökkun matvæla. – Félagsh. Valfelli. -Nýtt leyfi.
Þorpið frístundamiðstöð. – Þjóðbraut 13, Akranesi. – Nýtt leyfi.
Samþykkt.
3. Tóbakssöluleyfi til 4 ára.
Olís, Esjubraut 45, Akranesi. – Endurnýjun
Samþykkt.
4. Umsagnir til sýslumanns.
Beitistaðir, Hvalfj.sveit – heimagisting. – Nýtt leyfi.
Hvalalíf ehf. – Hvalaskoðunarbátur, Andrea AK. – Nýtt leyfi.
Báturinn liggur í Reykjavíkurhöfn en heimahöfn er á Akranesi.
Starfsleyfi og starfsleyfisskilyrði Heilbrigðisnefndar verða gerð síðar, sbr. lög nr. 7/1998 og lög nr. 93/1995.
Framlagt.
5. Önnur mál
· Bensínlyktarmál á Akranesi. 23.09.10
Í september s.l komu kvartanir frá íbúum nokkura húsa við Esjubraut vegna megnrar bensínlyktar sem kom upp úr niðurföllum. Reynt var að finna hugsanleg upptök mengunarinnar, m.a með skoðun á brunnum og búnaði við nálæga Olísstöð og skoðun á fráveitubúnaði hjá iðnaðarstarfsemi í nágrenninu. Samstarf var haft við OR. Upptökin ekki ljós.
Gögn um málið lögð fram.
· Hundamál á Akranesi.
Framkvæmdastjóri fór yfir mál sem tengist ítrekuðum kvörtunum sem bárust í ágúst og byrjun september vegna ónæðis af hundum á Akranesi. Hundaeiganda var sent viðvörunarbréf og síðar var bréf sent til Akraneskaupsstaðar þar sem farið var fram á afturköllun á hundaleyfi.
Lagt fram til kynningar.
Nýútgefin hunda- og kattasamþykkt á Akranesi rædd samhliða, sem samþykktar voru frá Umhverfisráðuneyt 1.10.10. Formaður ræddi helstu áherslur í samþykktinni. Samþykkt að senda fyrirspurn til umhverfisráðuneytis um aðkomu heilbrigðisnefndar að gæludýramálum m.t.t stjórnsýslu.
· Salt til hálkueyðingar.
Framkvæmdastjóri kynnti fyrirspurn/ábendingu sem barst til HeV um það hvort að fiskvinnslusalt væri notað til hálkueyðingar á vegum, bæði í þéttbýli og dreifbýli. Framkv.stjóri sendi fyrirspurn til Vegagerðarinnar.
Gögn um málið lögð fram.
· Undanþágur vegna tóbakssölu.
Framkvæmdastjóri ræddi og kynnti undanþágur sem gefnar hafa verið út af HeV vegna sölu unginga á tóbaki í söluturnum og matvöruverslunum og ástæður þess að undanþágur eru veittar.
Bókun:Heilbrigðisnefnd hvetur sveitarstjórnir á Vesturlandi að kanna hvort farið sé eftir lögum sem snerta sölu á tóbaki til unglinga.
· Fráveitumál vegna hreinsistöðva.
Framkvæmdastjóri greindi frá tveimur málum er varða ólöglega losun í fráveitu á Akranesi í ágúst s.l og viðbrögð fyrirtækja við kröfum HeV.
Lagt fram.
· Samþykktir um hunda – og kattahald á Akranesi.
Málið rætt samhliða „Hundamál á Akranesi“ hér að ofan.
· Haustfundur SHÍ (samtök heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi) með UST, MAST, Umhv.ráðun og Sjávarútv. og Landb.ráðnu. 13. – 14. október n.k
Framkvæmdastjóri greindi frá dagskrá haustfundar, helstu málum og umræðum.
Fundi slitið kl: 17:10