Góð mæting var á Haustþing SSV 2023 sem fór fram í Reykholti nýverið. Hátt í 60 manns tóku þátt, um 30 kjörnir fulltrúar og auk þeirra sóttu þingið ýmsir góðir gestir. Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-orku og loftlagsmál ávarpið þingið og átti gott samtal við þingfulltrúa um það sem efst er á baugi í hans ráðuneyti. Þá heimsóttu þau Heiða Björk …
Sveitarstjórnarfulltrúar á Vesturlandi funda með þingmönnum NV-kjördæmis
Nýverið fundaði sveitarstjórnarfólk á Vesturlandi með þingmönnum NV-kjördæmis. Á fundinum fóru fulltrúar sveitarfélaganna yfir helstu áherslur sínar í ýmsum verkefnum. Efst á baugi voru samgöngumál, orkumál, fjarskipti, heilbrigðis- og öldrunarþjónusta, málefni fatlaðra, löggæsla og fleiri mikilvæg mál. Það er ljóst að framundan eru ýmis stór verkefni þar sem máli skiptir að unnið verði af einurð að ýmsum mikilvægum hagsmunamálum Vestlendinga. …
Uppbyggingarsjóður Vesturlands úthlutaði styrkjum til 11 verkefna í dag
Í dag úthlutaði Uppbyggingarsjóður Vesturlands tæpum 11 milljónum til 11 atvinnu- og nýsköpunarverkefna. Úthlutunin fór fram í Menntaskóla Borgarfjarðar og var hluti af dagskrá frumkvöðla- og fyrirtækjamótsins „Nýsköpun í vestri“ sem er samstarfsverkefni Gleipnis, nýsköpunar- og þróunarseturs á Vesturlandi, Nývest, Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi og er styrkt af Sóknaráætlun Vesturlands. Nýsköpun í vestri byrjaði í morgun kl. 10 og lýkur …
Nýsköpun í vestri – Frumkvöðla- og fyrirtækjamót á Vesturlandi
Frumkvöðla- og fyrirtækjamótið Nýsköpun í vestri verður haldið föstudaginn 29. september kl. 10-18 í Hjálmakletti í Borgarnesi. Mótið opið öllum þeim sem hafa áhuga á nýsköpun og frumkvöðlastarfi, umhverfismálum og sjálfbærni. Markmið Nýsköpunar í vestri er efla sköpunarkraft og frumkvöðlastarf á Vesturlandi, tengja fólk saman og stuðla að nýjum verkefnum og verðmætasköpun á svæðinu. Dagskráin er blanda af fræðslu, vinnustofum, …
Viðhorf til fjarvinnu, vörumerkja, náttúruperla og sögustaða á Vesturlandi
Út er komin skýrslan „Viðhorf til fjarvinnu, vörumerkja, náttúruperla og sögustaða á Vesturlandi“. Í henni eru tekin saman gögn um viðhorf Íslendinga til fjarvinnu, vörumerkja, náttúruperla og sögustaða á Vesturlandi. Þessum gögnum var safnað til hliðar við Ímyndarkönnun Vesturlands 2023 sem kom út í vor, þar sem ímynd Vesturlands í hugum íbúa annarra landshluta var könnuð. Var þátttakendum jafnframt boðið …
Haustþing SSV verður haldið í Reykholti
Haustþing SSV 2023 verður haldið í Reykholti (hátíðarsal héraðsskólans) 4. október n.k. Dagskrá hefst kl. 09:30 og er áætlað að þingið standi yfir til kl. 18:00. Þema þingsins verða menntamál. Seturétt á haustþingi SSV eiga fulltrúar sveitarfélaganna á Vesturlandi sem kosnir eru fulltrúar á aðalfund SSV. Fulltrúar og gestir hafa fengið sent fundarboð. Dagskrá haustþings 2023 …
Tónleikar í Dalíu
Eyþór Ingi Gunnlaugsson mun halda tónleika í Dalíu Búðardal laugardaginn 2 sept. n.k. Dalía er gamla Bankahúsið að Miðbraut 15 í Búðardal . Nú er þar bæði gistiaðstaða og salur sem m.a. hefur verið notaður til tónleikahalds, en verið er að fara af stað með meiri starfsemi þar. Tónleikarnir hefjast kl. 20 en húsið opnar kl. 18. miðasala er …
Ferða og menningarmál á Akranesi
Fimmtudaginn 7. september klukkan 10:00 verður boðið til súpufundar á Breiðinni Akranesi. Til umfjöllunar verða ferðamál og menningarmál á Akranesi. Fulltrúar frá Áfangastaða- og Markaðsstofa Vesturlands halda kynningu á sinni starfsemi. Sigursteinn Sigurðsson Menningarfulltrúi kynnirsitt starfssvið og verkefnin framundan. Opið fyrir spurningar og umræður áður en boðið verður upp á súpu. Fundurinn er opin öllum.
BLÁI ÞRÁÐURINN
Nú er mastersverkefni Ásu Katrínar Bjarnadóttur í sjálfbærri borgarhönnun við háskólann í Lundi um þematengdan strandstíg á Akranesi til sýnis á 2.hæð í glerrýminu á Breið nýsköpunarsetri. Hægt er að skoða sýninguna á opnunartíma 8-16 „BLÁI ÞRÁÐURINN” er hönnunarsýning um menningu, sögu, náttúru og upplifun strandlínu Akraness. Á sýningunni er lögð áhersla á að sýna hvernig hönnun og framsetning …
Auglýst eftir umsóknum: Flokkun í anda hringrásarhagkerfis
SSV auglýsir eftir áhugasömum rekstraraðilum á Vesturlandi til að taka þátt í verkefni um bætta úrgangsstjórnun. Verkefnið er hluti af áhersluverkefni Sóknaráætlunar 2020-2024 sem nefnist Flokkun í anda hringrásarhagkerfis. Rekstraraðilar þar sem líklegt er að mest falli til af lífrænum úrgangi eiga kost á að taka þátt í verkefninu og er áhersla lögð á eftirtalda flokka: Matvöruverslanir Matvælavinnslur Veitingastaðir Valin …