Svala Svavarsdóttir hefur verið ráðin verkefnisstjóri hjá SSV, en verkefnisstjóri mun hafa umsjón með Uppbyggingarsjóði Vesturlands, fjármálum og upplýsingamál SSV. Hún var valin úr hópi fjórtán umsækjanda um starfið, en Hagvangur hélt utan um ráðningarferlið fyrir SSV. Svala er búsett í Búðardal og er viðskiptafræðingur að mennt. Hún starfaði lengi hjá Arion-banka í Búðardal, fyrst sem fjármálaráðgjafi og síðar sem …
Lokun vegna starfsdags SSV fimmtudaginn 30. ágúst.
Skrifstofa SSV verður lokuð fimmtudaginn 30. ágúst vegna starfsdags starfsmanna, sem haldinn verður í Búðardal að þessu sinni.
Byggðaþróun og umhverfismál, hvernig getur blómleg byggð og náttúruvernd farið saman ?
Opnað hefur verið fyrir skráningar á byggðaráðstefnu sem ber yfirskriftina „Byggðaþróun og umhverfismál, hvernig getur blómleg byggð og náttúrvernd farið saman?“. Ráðstefnan mun fara fram í Stykkishólmi dagana 16 og 17 október n.k. Í viðhengi með þessari frétt eru frekari upplýsingar um skráningu og þátttökugjald. Byggðaráðstefna 2018
Starfshópur á vegum Samgöngu og sveitarstjórnarráðuneytisins.
Rakel Óskarsdóttir formaður SSV hefur verið skipuð í starfshóp á vegum Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins um hlutverk og stöðu landshlutasamtaka sveitarfélaga. Í hópnum eru fimm fulltrúar, tveir fulltrúanna eru tilnefndir af ráðuneytinu, tveir frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og loks er Rakel tilnefnd af landshlutasamtökum sveitarfélaga. Megin hlutverk hópsins er að meta stöðu landshlutasamtaka sveitarfélaga og skilgreina hlutverk þeirra og stöðu gagnvart …
Sumarlokun á skrifstofu SSV 16. júlí – 7.ágúst.
Skrifstofa SSV verður lokuð vegna sumarleyfa frá og með 16 júlí og opnum við aftur þriðjudaginn 7 ágúst.
Áfangastaðaáætlun Vesturlands fer vel af stað.
Vinna við Áfangastaðaáætlun ferðamála á Vesturlandi (ÁFÁ Vest.) er nú farin að skila árangri við framþróun ferðamála á Vesturlandi. Búið er að skila inn til Ferðamálastofu (FMS) sóknaráætlun ferðamála þ.e. niðurstöðum úr áætlunarvinnunni, framtíðarsýn og aðgerðaáætlun Áfangastaða-áætlunar ferðamála á Vesturlandi 2018-2020. Það var þó gert með fyrirvara um að eftir væri að kynna þessa vinnu og niðurstöður áætlunarinnar fyrir nýjum …
Byggðaráðstefnan 2018
Kallað er eftir erindum á Byggðaráðstefnuna sem haldin verður 16.-17. október 2018 í Stykkishólmi. Umfjöllunarefni ráðstefnunnar er: Byggðaþróun og umhverfismál, hvernig getur blómleg byggð og náttúrvernd farið saman? Tilgangur ráðstefnunnar er að tengja saman fræðilega og hagnýta þekkingu á byggðaþróun með það að markmiði að stuðla að sjálfbærri þróun byggðar um allt land. Ráðstefnan er vettvangur fólks úr háskólum, …
Símakerfið er komið í lag :)
Símakerfi SSV er komið í lag
Símakerfið niðri
Vegna bilunnar í simakerfi í Borgarnesi liggur allt síma og netkerfi niðri, ekki er vitað hvað þetta verður lengi.
Sumarfundur landshlutasamtaka sveitarfélaga.
Sumarfundur landshlutasamtaka sveitarfélaga var haldinn á Hótel Glym dagana 6 og 7 júní s.l. Á fundinum tóku þátt formenn og framkvæmdastjórar landshlutasamtaka ásamt gestum sem að þessu sinni voru þau Karl Björnsson framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga og Hólmfríður Sveinsdóttir sérfræðingur í byggðamálum í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Á fundinum var farið yfir ýmis mál sem eru ofarlega á baugi í starfsemi …