Febrúar, 2025

1feb - 1710:52feb 17- 15:00Tækniþróunarsjóður- Markaður

Meira

Nánari upplýsingar

Markaðsstyrkur er eingöngu fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem verja að lágmarki 10% af veltunni til rannsókna-eða þróunarstarfs samkvæmt síðasta reikningsári.

Markaður er markaðsstyrkur til fyrirtækja sem skiptist í tvo ólíka flokka: Markaðsþróun og Markaðssókn. Þessum flokkum er ætlað að styðja við fyrirtæki á mismunandi stigum í undirbúningi afurðar á markað.

Styrkur getur numið allt að 10 m.kr. og mótframlag skal vera að lágmarki 50% af heildarkostnaði við verkefnið. Hámarks lengd verkefnis er eitt ár.

Umsóknarfrestur er til kl. 15:00 á lokadegi umsóknarfrests. Umsókn skal skila rafrænt í umsóknarkerfi Rannís.

Sjá nánar á vefsíðu sjóðsins. Athygli er vakin á því að starfsfólk Tækniþróunarsjóðs veitir upplýsingar og ráðgjöf er snúa að sjóðnum.

Klukkan

1 (Laugardagur) 10:52 - 17 (Mánudagur) 15:00

[was-this-helpful]
Samtök Sveitarfélaga á vesturlandi Samtök Sveitarfélaga á vesturlandi
433 2310
X