Úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs Vesturlands

SSVFréttir

Uppbyggingarsjóður Vesturlands auglýsti eftir umsóknum í sjóðinn í október s.l.
Alls bárust 142 umsóknir. Úthlutunarnefnd ákvað á fundi sínum 22. janúar s.l. að úthluta samtals kr. 43.585.000 til 98 verkefna. Úthlutunarhátíð sjóðsins verður haldin í Félagsheimilinu Fannahlíð í Hvalfjarðarsveit föstudaginn 7. febrúar og hefst kl. 14:00.