Seinni könnun ferðaleiðar um Borgarfjörð

SSVFréttir

Nú liggja fyrir svör úr fyrstu spurningakönnuninni sem lögð var fyrir hagaðila ferðaleiðar um Borgarfjörð. Hér má nálgast ítarlega umræðu um niðurstöður þeirrar könnunar og þau þemu sem dregin voru fram í myndbandsupptöku:

Þessi þemu ferðaleiðarinnar eru viðfangsefni næstu könnunar okkar. Nú spyrjum við um staði sem þið tengið við þemun út frá ykkar staðsetningu á svæðinu. Könnunin er mikilvægur liður í því að ná utan um svæðið á heildrænan máta og móta stefnu um verndum, uppbyggingu og markaðssetningu til framtíðar. Könnunina má nálgast hér og verður hún aðgengileg til hádegis mánudaginn 8. júní.
Ferðaleiðin um Borgarfjörð er verkefni sem unnið er af Markaðsstofu Vesturlands, Borgarbyggð og Skorradalshrepp.

 

Verkefnið er stutt af Sóknaráætlun Vesturlands