Ferðaþjónustan Húsafelli hlaut Nýsköpunarverðlaun SSV 2019

SSVFréttir

Undanfarin þrjú ár hafa nýsköpunarverðlaun SSV verið veitt fyrirtækjum sem þykja hafa komið fram með áhugaverða nýjung á árinu. Þessi verðlaun voru fyrst veitt árið 2016 og þá varð Cave, fyrirtækið sem rekur ferðaþjónustu við hellinn Víðgelmi í Borgarfirði, fyrir valinu. Árið 2017 var fyrirtækið Asco Harvester í Stykkishólmi valið, en fyrirtækið hannaði og smíðaði þangskurðarpramma sem var tekinn í notkun á því ári. Loks var á síðasta ári fyrirtækið Guðmundur Runólfsson hf. fyrir valinu. Á fimmtíu ára afmælishátíð SSV í Hjálmakletti síðastliðinn föstudag voru verðlaunin afhent í fjórða skipti og komu þau í hlut Bergþórs Kristleifssonar og Hrefnu Sigmarsdóttur sem reka Ferðaþjónustuna á Húsafelli. Sá háttur er hafður á að atvinnuráðgjafar SSV tilnefna þrjú fyrirtæki og voru tilnefningarnar lagðar fyrir stjórn SSV. Niðurstaða stjórnar var einhuga um að velja Ferðaþjónustuna Húsafelli.

Eggert Kjartansson formaður SSV, Hrefna Sigmarsdóttir, Bergþór Kristleifsson og Páll S Brynjarsson framkvæmdastjóri SSV. Ljósm. Gísli Einarsson.

Í umsögn stjórnar SSV segir: „Um árabil hefur verið rekin ferðaþjónusta í Húsafelli og var sérstakt fyrirtæki stofnað í kringum hana árið 1990. Kristleifur Þorsteinsson á Húsafelli var í raun frumherji í uppbyggingu ferðaþjónustu á Vesturlandi og hefur fjölskylda hans haldið uppbyggingunni áfram af miklum dugnaði. Þar hefur verið skipulagt svæði undir sumarhús og eru um 200 hús í Húsafelli í dag.  Sundlaug, tjaldsvæði, verslun og veitingaþjónusta, golfvöllur og ýmiskonar afþreying er þar til staðar. Árið 2015 opnaði nýtt glæsilegt hótel í Húsafelli.  Þá hefur ferðaþjónustan byggt upp virkjanir til að þjónusta sumarhúsaeigendur og nýverið var tekin í notkun ný virkjun sem selur rafmagn inn á dreifikerfi Rarik. Því má segja að Húsafell sé í dag sjálfbært svæði, með rafmagn, kalt vatn og heitt vatn. Á árinu 2018 var unnið markvisst að gerð og merkingu göngustíga við og í nágrenni Húsafells og haldið áfram með það verkefni á þessu ári. Á þessu ári hefur einnig verið unnið að gerð Giljabaða, sem eru náttúruböð í Hringsgili fyrir ofan Húsafell.  Böðin eru tilbúin og verður innan skamms farið að selja gestum aðgengi. Allar framkvæmdir eru unnar af smekkvísi og miklum metnaði.

Ferðaþjónustan í Húsafelli hefur verið í stöðugri nýsköpun frá því að Kristleifur færði sig úr hefðbundnum búskap í ferðaþjónustu árið 1968. Það má því með sanni segja að Ferðaþjónustan í Húsafelli sé nokkurs konar samnefnari þeirrar uppbyggingar sem hefur orðið í ferðaþjónustu á Vesturlandi á starfstíma SSV.“

Hrefnu og Bergþóri var til minningar afhent listaverk eftir Dýrfinnu Torfadóttur gullsmið.