Covid úrræðin og þinn rekstur

SSVFréttir

Þann 18. janúar næstkomandi bjóða KPMG og SSV til gagnvirks fróðleiksfundar um COVID úrræði stjórnvalda.

Á fundinum verður stutt framsaga um helstu úrræðin sem eru í boði auk þess sem þátttakendum gefst færi á að spyrja sérfræðinga KPMG út í einstök atriði. Hugmyndin er að takmarka fjölda þátttakenda við 30 manns í von um gagnvirkt samtal þátttakenda og sérfræðinga KPMG.

Við munum senda skráðum þátttakendum hlekk á fundinn þegar nær dregur – en
hér er hægt er að skrá sig á veffundinn
.

Kær kveðja,
Starfsfólk KPMG og SSV